

Sérfræðingur á fjármálasviði
GOOD GOOD leitar að öflugum og nákvæmum sérfræðingi á fjármálasvið. Við viljum fá í teymið okkar einstakling sem hefur brennandi áhuga á fjölbreyttum fjármálaverkefnum og er tilbúinn að taka þátt í að styðja við ört vaxandi alþjóðlegu fyrirtæki.
Í starfinu felst ábyrgð á daglegri fjármálavinnu fyrirtækisins, samskiptum við samstarfsaðila og birgja, tryggja að öll fjármálatengd verkefni séu unnin rétt og á réttum tíma.
· Vinnsla og greining gagna ásamt skýrslugerð fyrir fjármálasvið og stjórnendur
· Lögbundin skýrslugjöf í löndum þar sem fyrirtækið starfar (Ísland, Holland og Bandaríkin)
· Samskipti við viðskiptavini, birgja og samstarfsaðila
· Önnur tilfallandi skrifstofu- og fjármálatengd verkefni
· Mjög gott vald á Excel og gagnagrunnsvinnu
· Skipulögð vinnubrögð, nákvæmni og frumkvæði
· Reynsla af alþjóðlegu umhverfi er kostur
· Traust þekking á uppgjörsferlum og bókhaldi er kostur
· Mjög góð enskukunnátta þar sem GOOD GOOD er alþjóðlegur vinnustaður













