Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins
Við rekum fimmtán heilsugæslustöðvar í Reykjavík, Seltjarnarnesi, Mosfellsumdæmi, Kópavogi, Garðabæ og Hafnarfirði, þar sem við veitum samræmda þjónustu.
Einnig sjáum við um sérþjónustustöðvarnar: Heimahjúkrun í Hafnarfirði, Garðabæ, Kópavogi og Mosfellsumdæmi, Geðheilsumiðstöð barna, Göngudeild sóttvarna, Geðheilsuteymi HH austur, Geðheilsuteymi HH vestur, Geðheilsuteymi HH suður, Geðheilsuteymi Taugaþroskaraskanna, Geðheilsuteymi fangelsa, Geðheilsuteymi ADHD fullorðinna, Samhæfingastöð krabbameinsskimanna, Upplýsingamiðstöð, Þróunarmiðstöð íslenskrar heilsugæslu auk stoðþjónustu á skrifstofu.
Heilsuvera er samstarfsverkefni okkar og Embættis landlæknis. Þar er hægt að hafa samskipti við starfsfólk heilsugæslustöðvanna og fræðast um heilsu og áhrifaþætti hennar.
Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins hefur á að skipa sérhæfðu og metnaðarfullu starfsfólki sem vinnur í hvetjandi og áhugaverðu starfsumhverfi þar sem frumkvæði og sjálfstæði þeirra fær að njóta sín.
Starfsfólk heilsugæslunnar vinnur að því að veita íbúum höfuðborgarsvæðisins aðgengilega, samfellda og alhliða heilsugæsluþjónustu. Þjónustan byggir á sérþekkingu og víðtæku þverfaglegu samstarfi.
Sálfræðingur -Geðheilsuteymi fangelsa HH
Laust er til umsóknar 60-100% tímabundið starf sálfræðings við Geðheilsuteymi fangelsa HH til eins árs. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf 1. mars nk. eða samkvæmt nánara samkomulagi.
Um er að ræða spennandi vettvang fyrir sálfræðing sem hefur áhuga á nýsköpun og framþróun í heilsugæslu. Áhersla er lögð á þverfaglega teymisvinnu, batahugmyndafræði og skaðaminnkun.
Veittur er góður stuðningur í teyminu og handleiðsla í boði bæði innan teymis og utan.
Nánari upplýsingar um starfsemina má finna á vef Heilsugæslunnar (www.heilsugaeslan.is)
Helstu verkefni og ábyrgð
- Sinnir greiningu og meðferð skjólstæðinga í þverfaglegu teymi
- Tekur þátt í að skipuleggja þjæónustu við skjólstæðinga í teymi og vísa í önnur úrræði
- Vinnur náið með öðru heilbrigðisstarfsfólki sem veitir almenna heilbrigðisþjónustu innan fangelsana og hefur reglulega samráð við sérfræðinga Fangelsismálastofnunar
- Sinnir þróunarstarfi og umbótastarfi geðheilbrigðisþjónustu í fangelsum með öðrum í teyminu
- Vinnur sjálfstætt við sálfræðiathuganir, mat og ráðgjöf
Menntunar- og hæfniskröfur
- Leyfi frá landlækni til að starfa sem sálfræðingur er skilyrði
- 2-3 ára starfsreynsla af klínísku starfi er æskileg
- Sérfræðiviðurkenning í klínískri sálfræði æskileg
- Reynsla af greiningu og meðferð geðraskana og fíknivanda kostur
- Reynsla af greiningu og meðferð fólks með flókinn samsettan vanda
- Reynsla af áhugahvetjandi samtalstækni
- Góð þekking á ADHD og persónuleikaröskunum
- Þekking á aðferðum skaðaminnkunar
- Sjálfstæði, frumkvæði og lausnamiðuð nálgun
- Framúrskarandi samskiptahæfni, fagmennska og jákvæðni
- Reynsla af þverfaglegri teymisvinnu
- Faglegur metnaður og ábyrgð í starfi
- Góð íslenskukunnátta
- Góð almenn tölvukunnátta
Fríðindi í starfi
- Heilsustyrkur
- Samgöngustyrkur
Auglýsing birt27. janúar 2025
Umsóknarfrestur11. febrúar 2025
Tungumálahæfni
Íslenska
FramúrskarandiNauðsyn
Enska
MeðalhæfniNauðsyn
Staðsetning
Þönglabakki 1, 109 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
JákvæðniMannleg samskiptiSjálfstæð vinnubrögð
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (5)
Ljósmóðir - Heilsugæslan Miðbæ
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins
Meðferðaraðili - Heilaörvunarmiðstöð HH
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins
Sálfræðingur barna og unglinga - Heilsugæslan Efstaleiti
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins
Hjúkrunarfræðingur - Heilsugæslan Sólvangi
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins
Þjónustufulltrúi - Upplýsingamiðstöð HH
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins
Sambærileg störf (7)
Leikskólakennari/þroskaþjálfi/starfsm. með sálfræðimenntun
Leikskólinn Stakkaborg
Deildarstjóri í Vinagerði
Leikskólinn Vinagerði
Sérkennsla í Ægisborg - teymisvinna.
Leikskólinn Ægisborg
Sálfræðingur barna og unglinga - Heilsugæslan Efstaleiti
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins
MST meðferðaraðilar
Barna- og fjölskyldustofa
Sérkennsla í leikskólanum Suðurborg
Leikskólinn Suðurborg
Meðferðaraðili á göngudeild SÁÁ
SÁÁ