MST meðferðaraðilar
Barna- og fjölskyldustofa hefur lausar til umsóknar þrjár 100% stöður MST meðferðaraðila. MST er gagnreynd meðferð fyrir fjölskyldur barna á aldrinum 12-18 ára sem glíma við alvarlegan hegðunar-, tilfinninga- og vímuefnavanda. Meðferðin miðar að því að draga úr vandanum með því að efla bjargráð foreldra og bæta samheldni og samskipti í fjölskyldum og fer fram á heimili og í nærumhverfi fjölskyldunnar.
MST meðferðaraðili sinnir meðferð fjölskyldna og barna í nærumhverfi undir handleiðslu teymisstjóra í samvinnu við lykilaðila. Meðferðaraðilinn heldur meðferðarfundi og er aðgengilegur forsjáraðilum barns í síma innan umsamins sveigjanlegs vinnutíma. Vinnuspönn meðferðaraðila er 8 klukkustundir á dag milli kl. 9:00 og 20:00 auk þess sem gert er ráð fyrir að meðferðaraðili sinni stundum bakvöktum á kvöldin, nóttunni og um helgar. Meðferðaraðilinn gerir vikulegar skráningar á meðferðarvinnu og meðferðaráætlun fyrir faghandleiðslu teymis. Einnig tekur hann þátt í klínískri starfsþróun með teymisstjóra og erlendum MST sérfræðingi.
-
Meistarapróf og starfsleyfi sem sálfræðingur eða félagsráðgjafi með klíníska reynslu.
-
Þekking og reynsla í hugrænni atferlismeðferð, fjölskyldumeðferð, atferlismótun og félagsnámskenningum.
-
Þekking og reynsla af gagnreyndum aðferðum í þjónustu við börn og fjölskyldur.
-
Þekking á sviði frávika í hegðun og þroska barna og unglinga, matsaðferðum og greiningarhugtökum.
-
Sérmenntun í meðferðarvinnu sem nýtist í starfi er æskileg.
-
Góð íslensku- og enskukunnáttu í rituðu og töluðu máli.
-
Hæfni til að vinna skipulega, markmiðatengt og lausnamiðað.
-
Sjálfstæði í vinnubrögðum.
-
Áhugi og forsendur umsækjenda til þess að tileinka sér aðferðir MST.
-
Góð samstarfshæfni, sveigjanleiki og jákvætt viðhorfi til skjólstæðinga og samstarfsaðila.
-
Gild ökuréttindi.