Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins

Ljósmóðir - Heilsugæslan Miðbæ

Við leitum að ljósmóður sem hefur áhuga á fjölbreyttum, krefjandi og skemmtilegum verkefnum í starfi sem er í stöðugri þróun. Um er að ræða tímabundið starf í 18 mánuði og er starfshlutfall 40% eða samkvæmt nánara samkomulagi. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf 1. mars nk. eða eftir nánara samkomulagi.

Hjá Heilsugæslunni Miðbæ starfa sérhæft og metnaðarfullt starfsfólk í hvetjandi og áhugaverðu starfsumhverfi þar sem frumkvæði og sjálfstæði fær að njóta sín. Hjá okkur ríkir góður starfsandi og áhersla er lögð á náið samstarf fagstétta og teymisvinnu.

Nánari upplýsingar um starfsemi stöðvarinnar má finna á vef Heilsugæslunnar (www.heilsugaeslan.is).

Helstu verkefni og ábyrgð

Megin starfssvið ljósmóður er mæðravernd og leghálsskimanir ásamt getnaðarvarnaráðgjöf.

Mæðravernd er í höndum ljósmæðra og heimilislækna á heilsugæslustöðvum og samráð er haft við fæðingarlækna ef þörf er á. Markmið með mæðravernd heilsugæslunnar er m.a. að stuðla að heilbrigði móður og barns, veita stuðning og ráðgjöf, greina áhættuþætti og veita fræðslu um meðgöngu og fæðingu. 

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Íslenskt hjúkrunarleyfi
  • Starfsleyfi sem ljósmóðir
  • Reynsla sem ljósmóðir á heilsugæslustöð kostur
  • Reynsla af leghálsskimunum kostur
  • Reynsla við að nota rafræna mæðraskrá
  • Góð þekking/próf í brjóstagjafaráðgjöf
  • Reynsla af vinnu á fæðingardeild og/eða meðgöngudeild kostur
  • Hæfni og lipurð í mannlegum samskiptum
  • Sjálfstæði í starfi, skipulagshæfni og öguð vinnubrögð
  • Reynsla og áhugi á teymisvinnu
  • Íslenskukunnátta og góð almenn tölvukunnátta
Fríðindi í starfi

Heilsustyrkur

Auglýsing birt27. janúar 2025
Umsóknarfrestur5. febrúar 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Vesturgata 7, 101 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar