Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins

Sálfræðingur - Efra-Breiðholt

Laust er til umsóknar 60% tímabundið starf sálfræðings til eins árs, fyrir börn og unglinga við Heilsugæsluna Efra Breiðholti. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst eða samkvæmt nánara samkomulagi.

Um er að ræða ábyrgðarmikið og krefjandi starf og spennandi vettvang fyrir reyndan sálfræðing með þekkingu á ýmsum meðferðarformum í sálfræði. Sálfræðingur starfar í þverfaglegu teymi með læknum, hjúkrunarfræðingum og öðru fagfólki í skemmtilegu starfsumhverfi sem er í stöðugri þróun.

Menntunar- og hæfniskröfur
Leyfi frá landlækni til að starfa sem sálfræðingur er skilyrði
A.m.k. 2-3 ára starfsreynsla af klínisku starfi skilyrði
Reynsla af greiningu og meðferð barna og unglinga með geðrænan vanda
Faglegur metnaður og áhugi á uppbyggingu sálfræðiþjónustu í heilsugæslu
Sjálfstæði, frumkvæði og lausnamiðuð nálgun í starfi
Þekking og reynsla af gagnreyndum aðferðum, s.s. hugrænni atferlismeðferð
Reynsla og áhugi á þverfaglegri teymisvinnu
Góð samskiptahæfni, lipurð og sveigjanleiki í samskiptum
Góð íslenskukunnátta skilyrði
Góð almenn tölvukunnátta
Helstu verkefni og ábyrgð
Sálfræðiþjónusta fyrir börn og unglinga að 18 ára aldri
Greining, mat og meðferð á geðrænum vanda
Einstaklings- og fjölskyldumiðuð viðtalsmeðferð
Námskeið í hugrænni atferlismeðferð, ráðgjöf og fræðsla
Handleiðsla og þjálfun nema í klínískri sálfræði
Þátttaka í þróun og uppbyggingu sálfræðiþjónustu í heilsugæslu
Samstarf við aðrar heilbrigðisstofnanir s.s. Landspítala og félagsþjónustu
Sinnir eftir þörfum foreldrum sem sækja þjónustu í mæðra-, ung- og smábarnavernd
Önnur tilfallandi verkefni eftir þörfum
Auglýsing birt23. nóvember 2021
Umsóknarfrestur6. desember 2021
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Hraunberg 6, 111 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Sálfræðingur
Starfsgreinar
Starfsmerkingar