Hagvangur
Hagvangur
Hagvangur

Réttindagæslumaður fatlaðs fólks - Mannréttindastofnun Íslands

Mannréttindastofnun Íslands auglýsir lausar til umsóknar þrjár stöður réttindagæslumanns fyrir fatlað fólk. Einnig kemur til greina að ráða í tímabundna stöðu/r. Við leitum að fólki sem vill standa vörð um réttindi fatlaðs fólks og taka þátt í að stuðla að samfélagi þar sem mannréttindi allra eru virt.

Helstu verkefni og ábyrgð

Hlutverk réttindagæslumanns fatlaðs fólks er að fylgjast með mannréttindum fatlaðs fólks og veita því viðeigandi stuðning við réttindagæslu hvers konar, hvort sem það er varðandi þjónustu sem það á rétt á eða varðandi önnur réttindi.

Verkefni réttindagæslumanna geta m.a. falist í því að:

  • Veita fötluðu fólki leiðbeiningar og viðeigandi og einstaklingsmiðaðan stuðning við að standa vörð um réttindi sín og sjálfsákvörðunarrétt

  • Koma á framfæri sjónarmiðum og réttindum fatlaðs fólks til þjónustuaðila eða stofnana og eftir atvikum fylgja eftir málum sem varða mannréttindi fatlaðs fólks

  • Veita upplýsingar um réttindi fatlaðs fólks

  • Starfa innan öflugs teymis sem vinnur út frá lögum um réttindagæslu fyrir fatlað fólk og samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólapróf sem nýtist í starfi, svo sem á sviði félagsráðgjafar, þroskaþjálfunar, sálfræði eða lögfræði

  • Þekking og reynsla af málefnum fatlaðs fólks

  • Framúrskarandi samskiptahæfni

  • Jákvætt viðmót og þjónustulund

  • Færni til að vinna sjálfstætt og skipuleggja sig í starfi

  • Frumkvæði, sveigjanleiki og hugarfar grósku

  • Reynsla af teymisvinnu kostur

  • Góð þekking, skilningur og notkun á íslensku og ensku í ræðu og riti

  • Hreint sakavottorð

Auglýsing birt20. júní 2025
Umsóknarfrestur2. júlí 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Skógarhlíð 12, 105 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (1)