Vörður tryggingar
Vörður tryggingar
Vörður tryggingar

Lögfræðingur í persónutjónum

Hefur þú áhuga á að ganga til liðs við öflugt fyrirtæki í miklum vexti sem býður upp á besta mötuneyti landsins og útsýni á heimsmælikvarða?

Við hjá Verði leitum að sjálfstæðum og skipulögðum einstaklingi til að starfa í teymi lögfræðinga sem sinna persónutjónum. Starfið er í senn skemmtilegt, fjölbreytt og krefjandi og hvetjum við alla áhugasama einstaklinga til að sækja um. Starfið heyrir undir forstöðumann persónutjóna.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Bótauppgjör og mat á bótaskyldu
  • Lögfræðilegar álitsgerðir, ráðgjöf og lögfræðilegur stuðningur við starfsfólk sem sinnir afgreiðslu persónutjóna
  • Hagsmunagæsla gagnvart úrskurðarnefnd í vátryggingamálum
  • Samskipti, þjónusta og stuðningur við viðskiptavini og aðra hagsmunaaðila
  • Eftirlit með því að Vörður starfi í samræmi við lög og reglur á sviði skaðabóta- ogvátryggingaréttar
  • Önnur tilfallandi verkefni svo sem skilmálavinna og þátttaka í vöruþróun 
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Meistaranám á sviði lögfræði eða sambærileg menntun
  • Framúrskarandi samskiptahæfni og jákvætt viðmót
  • Frumkvæði og sjálfstæði í starfi
  • Gott vald á íslensku og ensku í töluðu og rituðu máli 
Fríðindi í starfi

Við bjóðum upp á frábæra vinnuaðstöðu í höfuðstöðvum okkar í Borgartúni. Þar má finna mötuneyti í heimsklassa, líkamsræktarsal í húsinu, öflugt starfsmannafélag og skemmtilegan starfsanda. 

Auglýsing birt13. júní 2025
Umsóknarfrestur22. júní 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Borgartún 19, 105 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögð
Starfsgreinar
Starfsmerkingar