

Rennismiður
Héðinn ehf óskar eftir að ráða rennismið til starfa við fjölbreytt verkefni við starfsstöð sína í Hafnarfirði.
Héðinn er leiðandi fyrirtæki hér á landi í málmiðnaði og véltækni. Starfsemi Héðins felst einkum í fjölbreyttri þjónustu við sjávarútveginn, stóriðjufyrirtæki og orkuframleiðendur.
Renniverkstæði Héðins er búið öflugum tækjakosti og reyndu fagfólki með langa reynslu af fjölbreyttum verkefnum. Renniverkstæðið annast nýsmíði, endurnýjun, þjónustu og viðhaldi við spóntöku með fjölbreyttu úrvali af rennibekkjum og fræsivélum. Tækjakosturinn er fjölbreyttur og gerir renniverkstæðinu kleift að leysa stór sem smá verkefni. Tækin eru allt frá tölvustýrðum afkastamiklum fræsivélum og rennibekkjum til handstýrðra tækja.
Vegna aukinna verkefna leitar Héðinn ehf nú að rennismið til framtíðarstarfa.











