
Klettur - sala og þjónusta ehf
Saga Kletts og forvera félagsins nær aftur til 1947 og er því óhætt að segja að félagið byggi á traustum grunni sérhæfðrar þekkingar og reynslu. Árið 2010 markaði nýtt upphaf en þá hófst starfsemi Kletts sem tók yfir allan rekstur vélasviðs Heklu. Allar götur síðan hefur Klettur verið leiðandi í sölu og þjónustu sem nær yfir breiða línu vinnuvéla, aflvéla, rafstöðva, lyftara, hjólbarða, vöruflutninga- og hópferðabíla ásamt hleðslukrönum og ábyggingum. Klettur býður einnig upp á ýmsan hliðarbúnað og fylgihluti frá þekktum vörumerkjum.
Helstu vörumerki félagsins eru Caterpillar vinnuvélar, aflvélar, rafstöðvar og lyftarar, Perkins aflvélar og rafstöðvar, Scania vöruflutninga- og hópferðabifreiðar, Scania aflvélar og rafstöðvar, Goodyear, Hankook, Nexen og Maxam hjólbarðar, Ingersoll Rand loftpressur, Mitsubishi gufuaflstúrbínur, Merlo skotbómulyftarar, ZF bátagírar, Hiab hleðslukaranar og gámakrókar, Ausa vinnuvélar, Multione liðléttingar, Trime ljósamöstur, Langendorf vagnar og pallar og Larue snjóblásarar. Félagið hefur starfað í marga áratugi með helstu birgjum sínum og er meðal elstu umboðsaðila þeirra vörumerkja í Evrópu.
Félagið og starfsmenn leggja metnað sinn í að vera leiðandi í sölu og þjónustu á þeim mörkuðum sem félagið vinnur á og að þær vörur og þjónusta sem boðið er uppá hjálpi viðskiptavinum Kletts að ná sem bestum árangri.
Klettur er hluti af Styrkás

Rekstrarstjóri Kletts á Norðurlandi
Klettur óskar eftir rekstrarstjóra á starfsstöð sína á Akureyri en þar er starfrækt þjónustuverkstæði og verslun með níu starfsmönnum. Verkstæðið er í mikilli framþróun og þar er að finna öll bestu tæki og tól sem völ er á til að veita viðskiptavinum á Akureyri og í nágrenni fyrsta flokks þjónustu.
Menntunar- og hæfniskröfur
Meistarapróf í bifvélavirkjun, vélvirkjun eða annað sambærilegt nám sem nýtist í starfi.
Helstu verkefni og ábyrgð
Ábyrgð á daglegri stjórnun á verkstæði
Móttaka verkefna og útdeiling þeirra til viðgerðarmanna
Starfsmannahald og samskipti við viðskiptavini
Vinna með deildarstjórum annarra deilda þjónustusviðs
Auglýsing birt21. maí 2021
Umsóknarfrestur15. júní 2021
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Hjalteyrargata 8, 600 Akureyri
Starfstegund
Hæfni
BifvélavirkjunMeistarapróf í iðngreinSamviskusemiStarfsmannahaldVélvirkjun
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (3)
Sambærileg störf (12)

Vélvirki, Stálsmiður, Járniðnaðar maður.
Cyltech tjakkalausnir

Tæknimaður á þjónustusviði
KAPP ehf

Verkstjóri garðyrkju - Þjónustumiðstöð
Hafnarfjarðarbær

Rafvirki óskast til starfa hjá Matfugli
Matfugl

Vélvirki á Grundartanga
HD Iðn- og tækniþjónusta

Bifvélavirki, vélvirki
Bílaverkstæði Hjalta ehf

Svæðisstjóri vöruhúss
Byko

Bifvélavirki
IB ehf

Hefur þú reynslu af vinnuvélum og tækjum og vilt vinna á skemmtilegum vinnustað
Vinnueftirlitið

Tæknimaður á Akureyri
Coca-Cola á Íslandi

Sérfræðingur í rafbúnaði í útibúi Johan Rönning, Akureyri
Johan Rönning

Smiðir í ryðfríu stáli óskast í Grindarvík
Slippurinn Akureyri ehf.