
Slippurinn Akureyri ehf.
Slippurinn Akureyri ehf. veitir alhliða þjónustu við sjávarútveginn og teljast helstu útgerðir á Íslandi til viðskiptavina fyrirtækisins, einnig hefur Slippnum orðið ágengt á erlendum markaði upp á síðakastið. Aðrir viðskiptavinir eru stóriðjur, virkjanir og ýmsar verksmiðjur. Slippurinn Akureyri ehf. er leiðandi fyrirtæki á sínu sviði hér á landi. Það rekur upptökumannvirki og viðgerðarstöð fyrir skip og annast hvers konar málmsmíði, vélsmíði, vélaviðgerðir, rennismíði og skipasmíðar. Fyrirtækið rekur ennfremur trésmíðaverkstæði, sand/vatnsblástur, málun og verslun með eigin framleiðslu og aðrar vörur til skipa. Skipaþjónusta Slippsins Akureyri annast þjónustu við sjávarútvegsfyrirtæki og býður heildarlausnir í hönnun, endurnýjun og viðhaldi á skipum og búnaði þeirra. Þá færast svonefnd landverkefni stöðugt í aukana hjá fyrirtækinu. Starfsmenn Slippsins Akureyri eru um 160 talsins. Í þeim hópi eru m.a. rennismiðir, stálsmiðir, trésmiðir, tækjamenn, verkamenn og vélvirkjar. Helstu þættir í skipaþjónustu Slippsins Akureyri eru slipptökur, þvottur og málun, vélaupptökur, skrúfuviðgerðir, stálviðgerðir og ryðfrí smíði auk innréttingasmíði og hvers konar viðhalds á tréskipum. Ef sérfræðingarnir finnast ekki innan okkar vébanda köllum við til einhver af okkur frábæru samstarfsfyrirtækjum, því við leggjum mikið upp úr slagorðinu gamla og góða, sem einhver smíðaði um árið: ”Allt á einum stað!” Viðskiptavinurinn á ekki að þurfa að leita lengra en til okkar því við bjóðum heildarlausn á þeim verkefnum sem við blasa hverju sinni.

Smiðir í ryðfríu stáli óskast í Grindarvík
Vegna aukinna umsvifa leitum við hjá Slippnum Akureyri að reynslumiklum málmiðnaðarmönnum í ryðfríu stáli á starfsstöð okkar í Grindarvík. Við bjóðum einstakt tækifæri til að taka þátt í fjölbreyttum, krefjandi og spennandi verkefnum, bæði innanlands og erlendis.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Smíði og samsetning á vinnslubúnaði fyrir matvælavinnslu
- Framleiðsla á fjölbreyttum framleiðsluvörum
- Uppsetning vinnslulína og búnaðar innanlands og erlendis
Menntunar- og hæfniskröfur
- Reynsla af smíði úr ryðfríu stáli
- Fagmennska og öguð vinnubrögð
- Stundvísi, áreiðanleiki og sterk öryggisvitund
- Frumkvæði, sjálfstæði og útsjónarsemi í starfi
- Lipurð í mannlegum samskiptum og hæfni til að vinna í teymi
Fríðindi í starfi
- Góðan aðbúnað og starfsumhverfi hjá framsæknu fyrirtæki
- Samkeppnishæf laun og starfsþjálfun í faglegu umhverfi
- Símenntun og möguleika til starfsþróunar
- Kraftmikinn og samhentan hóp samstarfsfólks
Auglýsing birt25. september 2026
Umsóknarfrestur31. október 2026
Tungumálahæfni
EnskaNauðsyn
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Hafnargata 21, 240 Grindavík
Starfstegund
Hæfni
FrumkvæðiMetnaðurSamviskusemiSjálfstæð vinnubrögðStálsmíðiStundvísiVélvirkjun
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Tæknimaður á Akureyri
Coca-Cola á Íslandi

Sérfræðingur í rafbúnaði í útibúi Johan Rönning, Akureyri
Johan Rönning

Rafvirki óskast til starfa hjá Matfugli
Matfugl

Verkamaður - Járnavinna / Metalworker
Íslenska gámafélagið ehf.

Reyndur Vélamaður/Vélvirki/Vélfræðingur
RST Net ehf.

Bifvélavirki - Peugeot
Peugeot á Íslandi | Brimborg

Viðhald lyftara og búnaðar í vöruhúsi
Bera hf.

Sviðsstjóri á Akureyri
HD ehf. Iðn- og tækniþjónusta

Rafvirkjar og vélvirkjar
Norðurál

Starfsmaður á tækjaverkstæði - Keflavíkurflugvöllur
Icelandair

Starfsmaður á verkstæði
Airport Associates

Öflugur vélvirki/vélfræðingur í Straumsvík
Rio Tinto á Íslandi