

Tæknimaður á þjónustusviði
Viltu vinna við fjölbreytt og krefjandi verkefni í öflugu tæknifyrirtæki?
KAPP leitar að öflugum einstaklingi til starfa á þjónustusviði fyrirtækisins í Kópavogi vegna aukinna verkefna.
Við leitum að vélfræðingi, vélstjóra, vélvirkja eða rafvirkja sem hefur áhuga á tæknilausnum, viðhaldi og þjónustu. Reynsla af kælikerfum, vélbúnaði eða loftpressum er kostur.
Starfið felur meðal annars í sér þjónustu, bilanagreiningu, viðhald og viðgerðir á kæli- og vélbúnaði hjá viðskiptavinum KAPP. Einnig viðgerðir og þjónustu á loftpressum, uppsetningar á búnaði og önnur verkefni sem falla til innan þjónustusviðs fyrirtækisins.
Verkefnin eru fjölbreytt og unnin bæði á verkstæði KAPP og hjá viðskiptavinum víða um land. Einnig koma til verkefni erlendis.
KAPP er tæknifyrirtæki á sviði kæliþjónustu, vélasmíði og tæknilausna fyrir sjávarútveg, fiskeldi og iðnað. Fyrirtækið hannar og framleiðir meðal annars OptimICE® kæli- og krapakerfi ásamt fjölbreyttum tæknilausnum fyrir atvinnulífið.
Hjá KAPP færðu fjölbreytt starf, öflugt faglegt umhverfi og tækifæri til að vinna með fjölbreyttan tæknibúnað og lausnir.
• Viðhald, viðgerðir og bilanagreining á kæli- og vélbúnaði
• Viðgerðir, viðhald og þjónusta á loftpressum
• Fyrirbyggjandi viðhald og reglubundin þjónusta hjá viðskiptavinum
• Uppsetning og gangsetning á búnaði og tæknilausnum frá KAPP
• Eftirlit, þjónusta og bilanagreining á kælikerfum
• Þjónustuheimsóknir til viðskiptavina innanlands og erlendis
• Önnur fjölbreytt verkefni sem falla til á þjónustusviði KAPP
Við leitum að einstaklingi sem:
• Hefur menntun sem vélfræðingur, vélstjóri, vélvirki, rafvirki eða sambærilega tæknimenntun. Reynsla á sambærilegu sviði kemur einnig til greina
• Hefur góða tæknilega færni og áhuga á bilanagreiningu og viðgerðum
• Hefur reynslu af kæli-, véla- eða loftpressubúnaði, sem er kostur
• Getur unnið sjálfstætt, sýnt frumkvæði og tekið ábyrgð á verkefnum
• Er lausnamiðaður, þjónustulundaður og á gott með samskipti
• Hefur góða öryggisvitund og leggur áherslu á vönduð vinnubrögð
• Er tilbúinn að sinna fjölbreyttum verkefnum og ferðast innanlands og erlendis eftir þörfum
• Hefur gilt ökuskírteini
KAPP býður,
• Fjölbreytt og krefjandi starf við fjölbreytt tækniverkefni
• Sterkt og reynslumikið teymi með mikla fagþekkingu
• Góða vinnuaðstöðu og öflugt starfsumhverfi
• Tækifæri til starfsþróunar, námskeiða og endurmenntunar
• Tækifæri til að auka þekkingu á kæli-, véla- og tæknibúnaði
• Verkefni bæði innanlands og erlendis
• Samkeppnishæf laun og góð starfskjör
• Starf hjá traustu íslensku tæknifyrirtæki í vexti
Íslenska
Enska










