

Rekstrarstjóri
Júní Digital leitar að lausnamiðuðum og framkvæmdaglöðum rekstrarstjóra sem hefur áhuga á að taka virkan þátt í uppbyggingu og daglegum rekstri ört vaxandi hönnunar- og hugbúnaðarfyrirtækis. Hlutverkið felur í sér fjölbreytt verkefni og náið samstarf við framkvæmdastjóra og teymi – þar sem sveigjanleiki, frumkvæði og yfirsýn skipta miklu máli.
Við bjóðum
- Fjölbreytt og ábyrgðarfullt starf í nánu og sveigjanlegu teymi.
- Áhrifamikla stöðu þar sem þú getur sett mark þitt á framtíð fyrirtækisins.
- Vinalegt vinnuumhverfi þar sem frumkvæði og nýsköpun eru metin að verðleikum.
- Kraftmikið og metnaðarfullt starfsumhverfi í hraðvaxandi tækniiðnaði.
Um okkur
Júní er stafrænt hönnunar- og hugbúnaðarfyrirtæki sem býður fyrirtækjum og stofnunum alhliða þjónustu í þróun stafrænna lausna. Þjónustuframboð Júní spannar allt ferlið við mótun stafrænna lausna þ.e. ráðgjöf, hönnun og forritun með það að markmiði að skapa framúrskarandi stafrænar lausnir.
Við hjá Júní viljum hafa áhrif á framtíðina í stafrænum lausnum sem einfalda og gera líf fólks betra. Júní einblínir á lærdómsmiðaða og frumlega hugsun, okkur þykir vænt um teymið og við viljum vera framsækin og hugrökk í nálgun okkar.
Endilega skoðið meira um okkur á juni.is
Þegar hæfileikaríkt fólk kemur saman verða til töfrar og útkoman er framúrskarandi árangur
Áhugasamir sendi CV, kynningarbréf og fleira um reynslu og áhugasvið.
Farið verður með allar umsóknir og fyrirspurnir sem trúnaðarmál.
Með kveðju frá öllum hjá Júní ❤️
- Stjórna daglegum rekstri og tryggja samræmi við stefnu fyrirtækisins.
- Styðja við mannauðsmál: ráðningar, starfsþróun og vinnustaðarmenningu.
- Samskipti og eftirfylgni við viðskiptavini, birgja og samstarfsaðila.
- Leiða samhæfingu á milli teyma innan fyrirtækisins: þróunar-, hönnunar-, ráðgjafarteymis o.fl.
- Aðstoð við verkefnastjórnun, eftirfylgni með verkefnum og markmiðum.
- Móta og bæta ferla innan reksturs, þjónustu, gæðamála og verkefnastjórnunar.
- Umsjón með rekstrartölum, kostnaðareftirliti og fjármálastjórn. Mæla árangur með skilgreindum lykil mælikvörðum (KPI’s) og innleiða umbætur eftir þörfum.
- Háskólamenntun í verkfærði, viðskiptafræði, tölvunarfræði eða tengdum greinum.
- Reynsla af rekstri eða verkefnastjórnun, helst innan tæknifyrirtækja.
- Sterk greiningarhæfni og færni í notkun gagna til að taka upplýstar ákvarðanir.
- Góð yfirsýn og hæfni til fjölbreyttra verka og aðlagast breytilegu vinnuálagi.
- Frumkvæði, skipulagshæfni og jákvætt hugarfar
- Lipur samskiptahæfni – bæði við teymið og utanaðkomandi aðila.
- Þekking á hugbúnaðarverkefnum er kostur, en ekki skilyrði.
- Reynsla af notkun stafrænna verkfæra (t.d. Notion, Slack, Google Workspace o.fl.)
- Leiðtogahæfileikar, frumkvæði og vilji til að byggja upp sterka vinnumenningu.

