Efling stéttarfélag
Efling stéttarfélag
Efling stéttarfélag

Ráðgjafi í vinnuréttindum

Vegna aukinna verkefna leitar Efling stéttarfélag að liðsauka á skrifstofu sína í Guðrúnartúni 1.

Við leitum að starfsmanni á Vinnuréttindasvið, til að veita félagsmönnum þjónustu og ráðgjöf á grundvelli kjarasamningsbundinna réttinda og íslenskra laga.

Leitað er að aðila sem hefur gott vald á íslensku og ensku. Kunnátta á öðrum tungumálum er kostur.

Viðkomandi þarf að vera skipulagður í vinnubrögðum, lausnamiðaður, jákvæður og reiðubúinn til að taka að sér fjölbreytt verkefni á skrifstofu Eflingar.

Helstu verkefni og ábyrgð

Samskipti og þjónusta við félagsfólk og atvinnurekendur

Móttaka, svörun og eftirfylgni erinda félagsfólks

Bréfaskriftir og kröfugerðir fyrir hönd félagsfólks

Útreikningar á launakröfum félagsfólks

Þátttaka í verkefnum þvert á deildir skrifstofu Eflingar

Menntunar- og hæfniskröfur

Stúdentspróf eða sambærileg menntun. Háskólapróf, t.d. í lögfræði, er kostur

Reynsla og þekking á vinnumarkaðsmálum og starfsemi stéttarfélaga er kostur

Góð færni í mannlegum samskiptum og menningarlæsi

Rík þjónustulund og umburðarlyndi

Skipulags- og greiningarhæfni og geta til að vinna undir álagi

Góð tök á íslensku og ensku í ræðu og riti, önnur tungumálakunnátta mikill kostur

Góð tölvukunnátta og reynsla í Office 365

Nákvæmni og vönduð vinnubrögð

Auglýsing birt10. júní 2024
Umsóknarfrestur24. júní 2024
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Guðrúnartún 1, 105 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.SamviskusemiPathCreated with Sketch.Vandvirkni
Starfsgreinar
Starfsmerkingar