
Ráðgjafi - Fyrirtækjasviði
Ráðgjafi - Fyrirtækjasvið
BPO innheimta óskar eftir að ráða ráðgjafa í sölu á þjónustulausnum BPO innheimtu á sviði kröfustjórnunar, þ.m.t. Innheimtu, fjármögnunar- og greiðslulausnum.
Í starfinu felst ráðgefandi sala á þjónustulausnum BPO innheimtu samskipti við viðskiptavini, greining og ráðgjöf, auk tilboðs-og samningagerðar.
Í starfinu reynir á sjálfstæð vinnubrögð og virka þáttöku í teymisvinnu.
Helstu verkefni og ábyrgð
Sala á þjónusutulausnum fyrirtækisins
Þjónusta við viðskiptavini
Greining og ráðgjöf
Þátttaka í markhópagreiningum
Tilboðs- og samningagerð
Menntunar- og hæfniskröfur
Söluhæfileikar og reynsla af sölustörfum nauðsynleg
Frumkvæði, jákvæðni og drifkrafur
Góð samskiptahæfni
Sjálfstæð og öguð vinnubrögð
Góð íslenskukunnátta
Góð árangurstengd laun í boði fyrir réttan aðila.
Virðing, trúnaður, traust er grundvöllur fyrirtækjamenningar BPO innheimtu, en innri gildi starfsmanna eru hjálpsemi, frumkvæði, jákvæðni, vinnusemi og umburðarlyndi.
Í boði er skemmtilegt umhverfi, metnaðarfullir samstarfsmenn, afburða upplýsingakerfi og öflugt fyrirtæki.
Ferilskrá og frekari upplýsingar sendist á Guðlaug Magnússon Framkvæmdastjóra á póstfangið [email protected].
Ráðið verður í starfið sem fyrst.
Nánari upplýsingar um starfsemina er að finna á vefsíðu bpo.is,











