Stígamót
Stígamót
Stígamót

Ráðgjafi

Við á Stígamótum leitum að ráðgjafa í fullt starf til eins árs með möguleika á framtíðarstarfi. Um er að ræða viðbót í starfshópinn vegna aukinnar aðsóknar.

Á Stígamótum tökum við á móti brotaþolum kynferðisofbeldis með það að markmiði að vinna úr áföllum og valdefla þá einstaklinga sem til okkar koma. Einnig sinnum við fræðslustarfi og vitundarvakningu um málaflokkinn.

Starfshópurinn á Stígamótum er samansettur af fagaðilum á ýmsum sviðum svo sem sálfræði, félagsráðgjöf, fjölskyldumeðferð, kynjafræði, listmeðferð, náms- og starfráðgjöf og fleira. Vinnustaðurinn er lifandi, skemmtilegur og í stöðugri þróun. Starfið byggist á reynslu okkar af vinnu með brotaþolum þar sem femínísk hugmyndafræði er höfð að leiðarljósi. Lögð er áhersla á að nýta styrkleika og hæfni hvers og eins starfskrafts.

Menntunar- og hæfniskröfur
Háskólamenntun sem nýtist í starfi
Reynsla af viðtalsráðgjöf mikilvæg
Góð íslenskukunnátta er skilyrði
Brennandi áhugi á jafnréttismálum og þekking á femínískri hugmyndafræði
Góðir samskiptahæfileikar, drifkraftur og frumkvæði
Helstu verkefni og ábyrgð
Ráðgjafarviðtöl við brotaþola þar sem unnið er úr afleiðingum kynferðisofbeldis
Stuðningur við aðstandendur
Auglýsing birt3. febrúar 2022
Umsóknarfrestur20. febrúar 2022
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Laugavegur 170-174, 105 Reykjavík
Starfstegund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar