Stuðlar, meðferðarstöð ríkisins fyrir unglinga
Stuðlar, meðferðarstöð ríkisins fyrir unglinga

Ráðgjafar á Stuðlum

Ný stofnun Barna- og fjölskyldustofa tók til starfa þann 1. janúar 2022. Barna- og fjölskyldustofa mun sinna verkefnum sem tengjast þjónustu við börn og fjölskyldur þeirra. Stofnunin mun taka við verkefnum Barnaverndarstofu og jafnframt gegna lykilhlutverki við samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna.

Vilt þú taka þátt í krefjandi og spennandi starfi með unglingum? Um er að ræða tvær tímabundnar stöður í 100% vaktavinnu á Stuðlum, Fossaleyni 17.

Menntunar- og hæfniskröfur
Reynsla og/eða menntun sem að mati forstöðumanns nýtist í starfi, t.d. í meðferðar-, tómstunda- eða íþróttastarfi.
Umsækjendur þurfa að geta tileinkað sér þá meðferðarnálgun og verklagsreglur sem unnið er eftir á Stuðlum.
Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.
Gild ökuréttindi.
Hreint sakavottorð.
Persónulegir eiginleikar: Lögð er áhersla á persónulega eiginleika, svo sem góða samskiptahæfni, sveigjanleika, jákvætt viðhorf til skjólstæðinga, líkamlegt og andlegt heilbrigði, áhuga á meðferðarstörfum og skipulögð vinnubrögð.
Helstu verkefni og ábyrgð
Meðferðarvinna og dagleg samskipti við unglinga.
Samskipti við foreldra og samstarfsaðila.
Vinna að tómstundastarfi með unglingum.
Einstaklingsbundinn stuðningur við unglinga í meðferð, í samvinnu við deildarstjóra, verkefnastjóra og sálfræðinga.
Umönnun og gæsla unglinga.
Auglýsing birt10. maí 2022
Umsóknarfrestur20. maí 2022
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Fossaleynir 17, 112 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar