
Grunnskóli Snæfellsbæjar
Grunnskóli Snæfellsbæjar er heildstæður 210 nemenda grunnskóli með þrjár starfsstöðvar, í Ólafsvík, á Hellissandi og á Lýsuhóli í Staðarsveit.
Skólinn hefur á að skipa vel menntuðu og hæfu starfsfólki. Áhersla er lögð á einstaklingsmiðun náms og fjölbreytta kennsluhætti með það að markmiði að gera hvern einstakling tilbúinn til þátttöku í frekara námi og lýðræðissamfélagi.
Skólinn leggur áherslu á átthagafræði og fékk Íslensku menntaverðlaunin fyrir það verkefni árið 2022.
Allar starfsstöðvar flagga Grænfána. Skólinn er þátttakandi í Olweusarverkefninu gegn einelti og er í fararbroddi við innleiðingu læsisfimmunar (The Daily 5).

Óskum eftir kennurum fyrir skólaárið 2025-2026
Auglýst er eftir tónmenntakennara í 30% starf og heimilisfræðikennara í 60% starf
Grunnskóli Snæfellsbæjar er þriggja starfstöðva grunnskóli með um 220 nemendur. Starfstöðvar hans eru í Ólafsvík, á Hellissandi og á Lýsu. Nánari upplýsingar um skólann eru á heimasíðu hans, á slóðinni http://www.gsnb.is/
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Leyfisbréf.
- Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum.
- Hæfni í mannlegum samskiptum og góðir skipulagshæfileikar.
- Reynsla af teymisvinnu og áhugi á þróunarstarfi.
- Góð íslenskukunnátta er skilyrði.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi KÍ og Launanefndar sveitarfélaga.
Umsóknarfrestur er til 11. júní. Sótt er um störfin á vefsíðu Snæfellsbæjar, https://www.snb.is/
Grunnskóli Snæfellsbæjar áskilur sér rétt til að hafna umsóknum.
Frekari upplýsingar veitir Hilmar Már Arason í síma 894 9903 eða [email protected]
Auglýsing birt2. júní 2025
Umsóknarfrestur11. júní 2025
Tungumálahæfni

Nauðsyn
Staðsetning
Keflavíkurgata 2, 360 Hellissandur
Ennisbraut 11, 355 Ólafsvík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Myllubakkaskóli- Sérkennari / íslenska sem annað mál kennari
Reykjanesbær

Umsjónarkennari á miðstigi
Egilsstaðaskóli

Leikskólasérkennari til að sinna stuðningi á Holtakoti
Garðabær

Leikskólakennari óskast á Heilsuleikskólann Holtakot
Garðabær

Táknmálstalandi aðstoðarforstöðumaður í frístundaheimili
Frístundamiðstöðin Tjörnin

Umsjónarkennari í Krikaskóla
Krikaskóli

Verkefnastjóri kennslu og velferðar
Kópavogsbær

Skólasafnskennari
Smáraskóli

Heimilisfræðikennari í Húnaskóla
Húnabyggð

Deildarstjóri stoðþjónustu/sérkennari - Mýró
Seltjarnarnesbær

Kennari óskast í leikskólann Nóaborg - 36 stunda vinnuvika
Leikskólinn Nóaborg

Vogaskóli - Umsjónarkennari á yngsta stig
Vogaskóli