
MT Ísland
## Um MT Ísland
MT Ísland er íslenskt þjónustu- og sérfræðifyrirtæki á sviði raka, myglu, tjóna og viðhalds fasteigna. Fyrirtækið var stofnað árið 2019 af danska fyrirtækinu Midtfyns Totalservice og byggir því á yfir 25 ára reynslu og þekkingu á greiningu og meðhöndlun raka- og mygluskemmda ásamt viðgerðum vegna vatns- og brunatjóna.
Frá stofnun hefur MT Ísland vaxið hratt og í dag starfa um 30 manns hjá og í kringum fyrirtækið á fjölbreyttum fagsviðum. Við leggjum áherslu á að geta veitt viðskiptavinum heildstæða þjónustu – allt frá fyrstu skoðun og greiningu á vandamáli yfir í úrbætur, viðgerðir og frágang.
Meðal verkefna okkar eru raka- og mygluskoðanir, rakamælingar, ástandsskoðanir fasteigna, sýnatökur og greiningar, hreinsun vegna myglu og annarra mengunarefna ásamt viðgerðum og enduruppbyggingu eftir vatns- og brunatjón.
Viðskiptavinir MT Ísland eru einstaklingar, fyrirtæki, tryggingarfélög og opinberir aðilar, auk nokkurra af stærstu fasteigna- og leigufélögum landsins.
MT Ísland er í örum vexti og markmið okkar er að byggja upp öflugt teymi fagfólks og vera leiðandi fyrirtæki á Íslandi á okkar sérsviðum. Við leggjum áherslu á fagmennsku, vönduð vinnubrögð, góða þjónustu og að starfsfólk fái tækifæri til að þróast og vaxa með fyrirtækinu.
Óskum eftir húsasmiðum
Við erum ört stækkandi og vantar fleiri menn í smíðadeildina okkar.
Um þig: Þú ert menntaður húsasmiður sem getur unnið sjálfstætt og ert vel skipulagður einstaklingur.
Menntunar- og hæfniskröfur
Góð íslensku og ensku kunnátta
Iðnmenntun sem nýtist í starfi
Helstu verkefni og ábyrgð
Niðurrif og uppbygging
Gluggaskipti
Glerskipti
Almennt viðhald fasteigna
Auglýsing birt30. mars 2022
Umsóknarfrestur14. apríl 2022
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Vagnhöfði 17, 110 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
HandlagniSmíðar
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (1)
Sambærileg störf (12)

Sölustjóri vöruflokka
Steypustöðin

Byggingafulltrúi
Bolungarvíkurkaupstaður

Verkstjóri - Klasi
Klasi

Mælingar-og uppsetningar á gluggatjöldum
Sólargluggatjöld ehf.

Verkstjóri / verkefnastjóri í byggingarframkvæmdum
Landris Byggingar ehf.

Smiður óskast til starfa
Smári smiður ehf.

Verkstjóri í framleiðslu
Nói Síríus

Verkefnastjóri
TILDRA Byggingafélag ehf.

Smiður
Kappar ehf.

Sérfræðingur í gæða- og öryggismálum
GG Verk ehf

Óskum eftir málara til starfa sem fyrst.
MT Ísland

Umsjónarmaður - Umsjón fasteigna
Félagsstofnun stúdenta