

Óska eftir NPA ofurkonum!
Icelandic speaking only please
Sælar dömur, mig bráðvantar einhvern snilling til þess að aðstoða mig við allar athafnir daglegs lífs. Þri, mið, og fimmtudags morgna og aðra hvora helgi frá kl.8-12 og 8-16 .
Aðstoðarfólk starfar eftir hugmyndafræðinni um sjálfstætt líf sem gerir mér kleift að sinna þeim athöfnum sem ég myndi sjálf framkvæma ef ekki væri fyrir líkamlega skerðingu mína.
Ég nota hjòlastòl og þarf aðstoð við flest allt eins og persónulega aðstoð við að koma mér framúr, klæða mig og snyrta, hafa mig til fyrir daginn og sinna léttum heimilisverkum.
Mikilvægt er að umsækjandi sé líkamlega hraust og reynsla af umönnun er góður kostur.
Laun eru samkvæmt sér kjarasamningum við eflingu sem hægt er að sjá inn á vefsíðu NPA miðstöðvarinnar npa.is
Einnig eru þar allar upplýsingar sem vert er að kynna sér um hlutverk NPA miðstöðvarinnar og hugmyndafræðinnar um sjàlfstætt líf.
Hafið endilega samband ef þið hafið àhuga.
Hlakka til að heyra frá sem flestum!
Íslenskukunnátta
Almenn ökuréttindi
Íslenska


















