
Lindaskóli
Lindaskóli er heildstæður grunnskóli fyrir börn frá 1. – 10. Bekk og er staðsettur við Núpalind 7.
Gildi Lindaskóla eru vinátta, virðing, viska og eiga þau að vera rauði þráðurinn í öllu starfi skólans. Í Lindaskóla er nemandinn í forgrunni í öllu skólastarfi. Leitast er við að skapa nemendum námsumhverfi þar sem hlúð er að hverjum einstaklingi og mismunandi þörfum þeirra. Í skólastarfinu er lögð áhersla á að allir nemendur fái nám við sitt hæfi. Lindaskóli leggur árherslu á að ná þessu markmiði með jákvæðu viðmóti og virðingu fyrir einstaklingnum
Stefna Lindaskóla er velgengi í skólastarfi, fagleg færni og metnaður. Starfsfólk Lindaskóla leggur mikla áherslu á að nemendum líði vel í skólanum og að nemendur leggi sig fram við námið og þau markmið og gildi sem skólinn setur sér.

Okkur vantar umsjónarkennara á miðstig í Lindaskóla
Við leitum að áhugasömum og metnaðarfullum kennara til liðs við frábæran hóp starfsfólks í Lindaskóla
Lindaskóli er heildstæður grunnskóli í Kópavogi. Í skólanum um 450 nemendur í 1. -10. bekk og 90 starfsmenn. Þar ríkir góður starfsandi og vinnuaðstæður eru góðar. Lindaskóli leggur rækt við listir og menningu í skólastarfinu. Hann leggur jafnframt áherslu á umhverfismennt og tekur þátt í innleiðingu Barnasáttmálans. Virk heilsuefling er eitt einkenna skólans og hefur til margra ára verið í forystusveit skóla sem hafa tekið þátt í Skólahreysti. Mikil og góð samvinna er milli skólans og heimila í nærumhverfinu. Mikil áhersla er lögð á upplýsingatækni og fjölbreytta kennsluhætti.
Gildi Lindaskóla eru Vinátta, Virðing, Viska.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Annast almenna kennslu á miðstigi í samráði við samkennara
- Bekkjarumsjón og samskipti og samstarf við foreldra og forráðamenn
- Skipulagning og framkvæmd náms í samræmi við aðalnámskrá grunnskóla.
- Stuðla að jákvæðu og hvetjandi skólaumhverfi fyrir alla nemendur.
- Þátttaka í þróunarstarfi og starfsmannafundum.
- Stuðla að velferð nemenda í samstarfi við fagfólk skólans
Menntunar- og hæfniskröfur
- Kennaramenntun og leyfisbréf til kennslu skilyrði
- Reynsla af kennslu æskileg
- Góð þekking á upplýsingatækni og notkun rafrænna miðla í kennslu og starfi
- Reynsla af teymiskennslu kostur
- Frumkvæði og metnaður í starfi
- Jákvæðni og áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi
- Lipurð í samskiptum, sveigjanleiki og samstarfshæfni
- Stundvísi og samviskusemi
Auglýsing birt20. október 2025
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni

Nauðsyn
Staðsetning
Núpalind 7, 201 Kópavogur
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Kennari við Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar
Fjarðabyggð

Umsjónarkennari á yngsta stigi - Öldutúnsskóli
Hafnarfjarðarbær

Umsjónarkennari á yngsta stigi
Reykjavíkurborg: skóla- og frístundasvið

Ert þú kennari? þá er þetta starfið fyrir þig
Leikskólinn Sjáland

Tímabundin staða í Marbakka
Marbakki

Sérkennari í Bjarg - Hvaleyrarskóli
Hafnarfjarðarbær

Forfallakennsla á unglingastigi
Árbæjarskóli

Leikskólakennari/leiðbeinandi
Leikskólinn Steinahlíð

Leikskólakennari óskast
Heilsuleikskólinn Skógarás

Aðstoðarleikskólastjóri óskast
Helgafellsskóli

Leikskólinn Álfatún óskar eftir deildarstjóra
Álfatún

Kennari við Grunnskóla Reyðarfjarðar
Fjarðabyggð