Fjarðabyggð
Fjarðabyggð
Fjarðabyggð

Kennari við Grunnskóla Reyðarfjarðar

Kennari við Grunnskóla Reyðarfjarðar
Grunnskóli Reyðarfjarðar óskar eftir að ráða kennara fyrir yfirstandandi skólaár. Leitað er að kennara til að kenna bóklegar námsgreinar á mið- og unglingastigi skólans.

Í skólanum eru um 200 börn í 1. - 10. bekk. Kennt er í anda Byrjendalæsis og Orði of orði og áhersla lögð á fjölbreytta kennsluhætti samkvæmt aðferðum leiðsagnarnáms. Leitað er að kennurum sem eru reiðubúnir til að ganga til liðs við samhentan hóp starfsfólks þar sem áherslan er lögð á samstarf og samvinnu.

Skólastarf Grunnskóla Reyðarfjarðar miðast að því að efla hvern einstakling í námi og starfi með fjölbreyttum kennsluaðferðum með áherslu á list- og verkgreinar. Nánari upplýsingar um skólann er að finna á heimasíðu, www.grunnrey.is

Reyðarfjörður er í hjarta Fjarðabyggðar þar sem góðar samgöngur liggja til allra átta. Stutt er í ósnortna náttúru og fjölbreytta afþreyingamöguleika.

Helstu verkefni og ábyrgð

•    Tekur þátt í skólaþróun í samræmi við stefnu skólans og sveitarfélagsins.
•     Annast kennslu samkvæmt megin markmiðum Aðalnámskrá grunnskólanna með hliðsjón af þörfum og þroska nemenda
•     Stuðla að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og annað fagfólk.
•     Starfar með öðrum kennurum og sérfræðingum skólans og veitir upplýsingar um námsgengi einstakra nemenda.
•     Að hafa hagsmuni nemenda að leiðarljósi og sýna hverjum og einum virðingu, áhuga og umhyggju

Menntunar- og hæfniskröfur

•    Leyfisbréf til kennslu á grunnskólastigi, starfsreynsla er æskileg.
•    Góð tök á íslensku máli, töluðu og skrifuðu er skilyrði.
•    Samskipta- og samstarfshæfni.
•    Frumkvæði og faglegur metnaður.
•    Ábyrgð í starfi og stundvísi.
•    Skipulagshæfileikar.
•    Reiðubúin/n að takast á við nýjungar.

Auglýsing birt16. október 2025
Umsóknarfrestur27. október 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Heiðarvegur 14A, 730 Reyðarfjörður
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar