

Okkur vantar leikskólakennara og/eða uppeldismenntaðan starfsmann í Arnarsmára
Við leitum að jákvæðum, stundvísum og ábyrgum leikskólakennurum eða uppeldismenntuðum starfsmanni til að ganga til liðs við okkar metnaðarfulla og fjölbreytta starfsmannahóp þar sem frumkvæði , vinátta og gleði er við völd á hverjum degi.
Okkur vantar leikskólakennara eða uppeldismenntaðan aðila til að vinna að uppeldi og menntun leikskólabarna og er tilbúin að tileinka sér stefnu og vinnuaðferðir skólans. Viðkomandi þarf að taka þátt í skipulagningu faglegs starfs, foreldrasamstarfi í samvinnu við deildarstjóra ásamt öðrum verkefnum skv. starfslýsingu og verkefnum sem yfirmaður felur starfsmanni.
Leikskólakennaramenntun og/eða uppeldismenntaður starfsmaður.
Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum með ungum börnum.
Góð íslenskukunnátta er skilyrði
Metnaðrfullt starfsumhverfi
Íþróttastyrkur
Fatastyrkur
Vetrarfrí í okt og feb.
Jólafrí og páskafrí
Styttri vinnuvika
Frítt í sund
Afsláttur af leikskólagjöldum
3 fríar máltíðir á dag
Íslenska










