Kóraskóli
Kóraskóli
Kóraskóli

Ert þú kennari í leit að fjölbreyttu og skemmtilegu starfi?

Í Kóraskóla eru um 230 nemendur í 8. - 10. árgangi og um 40 starfsmenn. Í skólanum er lögð áhersla á skapandi og framsækið skólastarf og eru allir nemendur skólans með spjaldtölvur. Kennt er í opnum rýmum og teymiskennsla er ríkjandi. Í námi og kennslu er rík áhersla á einstaklingsmiðun náms og fjölbreytta kennsluhætti.

Kóraskóli leitar að öflugum og jákvæðum kennara sem er tilbúinn að stíga inn í fjölbreytt og gefandi skólastarf þegar á þarf að halda. Um er að ræða tilfallandi forfallakennslu í vetur í öllum árgöngum og öllum námsgreinum.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Annast forfallakennslu í samráði við skólastjórnendur og aðra kennara.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Kennaramenntun og réttindi til kennslu í grunnskóla.
  • Þekking og áhugi á kennslu og uppeldisfræði.
  • Einlægur áhugi á að vinna með ungmennum.
  • Þolinmæði og hæfni í mannlegum samskiptum.
  • Stundvísi og áreiðanleiki.
  • Góð íslenskukunnátta í ræðu og riti.
Fríðindi í starfi

Starfsfólk Kópavogsbæjar fær frían aðgang að sundlaugum bæjarins.

Auglýsing birt7. október 2026
Umsóknarfrestur21. október 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Kóraskóli
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.KennariPathCreated with Sketch.Kennsla
Starfsgreinar
Starfsmerkingar