
Okkur vantar hressa og góða skólaliða.
Við í Grunnskólanum í Þorlákshöfn leitum að skólaliðum fyrir næsta skólaár. Ráðið verður í
stöðurnar frá og með 15. ágúst 2025. Í skólanum eru um 280 nemendur og starfsmenn eru
um 60 talsins. Skólinn vinnur samkvæmt hugmyndafræði Uppeldis til ábyrgðar og
teymiskennslu auk þess sem unnið er að innleiðingu leiðsagnarnáms. Þá tekur skólinn þátt í
verkefninu um Grænfána og Heilsueflandi skóla. Einkunnarorð skólans eru vinátta, virðing og
velgengni.
Viltu vita meira? Kíktu þá á heimasíðuna okkar: https://www.olfus.is/grunnskolinn
Um er að ræða stöður þar sem ráðningahlutfall er 80-100%.
Ræsting á skólahúsnæði.
Almenn gæsla og aðstoð við nemendur.
Gæsla í frímínútum og í mötuneyti skólans.
Áhugi á að starfa með börnum.
Reynsla af starfi með börnum er kostur.
Þolinmæði og hæfni í mannlegum samskiptum.
Jákvæðni og áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi.
Stundvísi og áreiðanleiki er skilyrði.






