Securitas
Securitas
Securitas

Öryggisvörður í farandgæslu

Við hjá Securitas leitum að liðsauka í okkar frábæra gæsluteymi til að taka þátt í að viðhalda góðu viðbragði og framúrskarandi þjónustu til viðskiptavina okkar. Lögð er rík áhersla á jákvætt hugarfar, sjálfstæð vinnubrögð og góðan liðsanda.

Starfið felur í sér almenna þjónustu við viðskiptavini Securitas, viðbragð við útköllum vegna boða frá öryggiskerfum, ásamt því að tryggja almennt öryggi og eftirlit með hvers konar öryggisþáttum viðskiptavina okkar.

Ef þú...

  • Býrð yfir mikilli þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum.
  • Sýnir frumkvæði í starfi og getu til að vinna sjálfstætt.
  • Býrð yfir metnaði til að takast á við krefjandi verkefni.

... þá erum við að leita af þér!

Í boði er fullt starf þar sem unnið er á vaktarkerfinu 5-5-4, ýmist dag- eða næturvöktum. Starfið hentar öllum kynjum sem náð hafa 20 ára aldri með góða íslenskukunnáttu, hreint sakavottorð og gilt ökuskírteini.

Umsóknarfrestur er til og með 24. apríl nk. Nánar upplýsingar um starfið veitir Sigurður Hlíðar Rúnarsson deildarstjóri farandgæslu, í síma 580-7000.

Auglýsing stofnuð12. apríl 2024
Umsóknarfrestur24. apríl 2024
Tungumálakunnátta
ÍslenskaÍslenskaMjög góð
Staðsetning
Tunguháls 11, 110 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar