
Síminn
Síminn er traust og framsækið fyrirtæki á sviði fjarskipta og afþreyingar sem vill laða til sín framúrskarandi starfsfólk. Við erum fjölskylduvænn vinnustaður og leggjum áherslu á sterka liðsheild, hvetjandi starfsumhverfi og tækifæri til starfsþróunar og vaxtar.
Hjá okkur hefur þú aðgang að framúrskarandi mötuneyti, fyrsta flokks kaffihúsi ásamt frábæru samstarfsfólki auk þess sem boðið er upp á búningsaðstöðu fyrir starfsfólk.
Við viljum hafa gaman í vinnunni og bjóðum reglulega upp á fjölbreytta innanhúss viðburði af ýmsu tagi.
Ef þú ert að leita að spennandi verkefnum, frábæru samstarfsfólki og lifandi vinnuumhverfi þá er Síminn góður kostur fyrir þig.
Síminn hlaut jafnlaunavottun Jafnréttisstofu árið 2018, fyrst allra fjarskiptafyrirtækja á Íslandi. Í anda jafnréttisstefnu Símans hvetjum við öll kyn til að sækja um hjá Simanum.
Gildi Símans eru skapandi, fagleg og árangursdrifin.

Öflugur auglýsingafulltrúi
Við leitum að lausnamiðuðum einstaklingi með reynslu af sölu í öflugt teymi auglýsingadeildar fyrir Sjónvarp Símans. Starfið felur í sér að rækta viðskiptatengsl við núverandi viðskiptavini, mótun nýrra viðskiptatækifæra ásamt gerð markaðsgreininga og söluáætlana. Um fullt starf er að ræða.
Við leitum að drífandi einstaklingi með metnað til að efla og viðhalda sölumenningu fyrirtækisins.
Menntunar- og hæfniskröfur
Háskólapróf í viðskipta- eða markaðs- og sölufræðum
Reynsla af sölu-, markaðs- og/eða þjónustugeira
Þekking á stafrænum miðlum og ferlum kostur
Færni í að halda kynningar fyrir viðskiptavini um vörur og þjónustu Símans
Sannfæringarkraftur, gott viðmót og sjálfsöryggi
Helstu verkefni og ábyrgð
Bera ábyrgð á sölu og söluáætlunum í samvinnu við söluteymi
Fagleg ráðgjöf til viðskiptavina
Samningagerð og endurgjöf til viðskiptavina
Vinna við CRM kerfi fyrirtækisins (Salesforce)
Þátttaka í sölugreiningu og þróun nýrra auglýsingaleiða
Auglýsing birt30. mars 2021
Umsóknarfrestur18. apríl 2021
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Ármúli 25, 108 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
FrumkvæðiMetnaðurSamningagerðSjálfstæð vinnubrögðSölumennskaÞjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Sölu og Markaðsfulltrúi í Beautybox
Beautybox

Sölufulltrúi, lager- og dreifing
Mekkano heildsala

Viðskiptastjóri í hjúkrunarvörum og heilbrigðislausnum
STOÐ

Rekstarstjóri Húsasmiðjunnar og Blómavals í Skútuvogi
Húsasmiðjan

Söluráðgjafar hjá Gullmarkaðinum
Arcarius ehf.

Account Manager
Teitur

Starfsmaður í Marc O'Polo
Marc O'Polo Kringlunni

Afgreiðsla og útstillingar
Bóksala stúdenta

Þjónustufulltrúi óskast hjá Hringdu!
Hringdu

Söluráðgjafi - fjölbýli og fyrirtæki
Ísorka

Sölustjóri
Ísorka

Þjónustufulltrúi / Service Agent
Campeasy