NPA

NPA starfsfólk óskast

Magni Freyr er 42 ára karlmaður búsettur í Mosfellsbæ, með skerta hreyfigetu og tjáningu. Við óskum eftir starfsmönnum í vaktavinnu. Vaktir eru á kvöldin á virkum dögum, en 7-8 tímar um helgar.

Meðal verkefna er að aðstoða við daglegt líf hans svo sem við að sinna heimilisstörfum, komast milli staða á bílnum hans, versla inn fyrir heimilið, o.fl. Hann þarf ekki neina aðstoð við persónulegt hreinlæti.

Hann hefur gaman af að fara í bíó, leikhús og kíkja á kaffihús um helgar og bara einfaldlega lifa lífinu og upplifa skemmtilega hluti :)

Starfið er notendastýrð persónuleg aðstoð (NPA) sem byggir á hugmyndafræðinni um sjálfstætt líf. Magni Freyr notast við hjólastól og göngugrind.

Jákvæðni, sveigjanleiki, ábyrgð og metnaður eru mikils metnir kostir auk þess sem viðkomandi þarf að búa yfir líkamlegri og andlegri heilsu.

Um er að ræða vaktavinnu bæði á virkum dögum og um helgar og mismunandi starfshlutfall í boði. Ekki er gerð krafa um starfsreynslu af vinnu með fötluðu fólki. Við erum að leita eftir aðstoðarfólki á aldrinum 20-40 ára sem hefur góða færni í mannlegum samskiptum, er með bílpróf og er helst reyklaust.

Umsækjandi þarf að geta hafið störf sem fyrst. Umsækjandi þarf að vera íslenskumælandi.

Þetta starf hentar einstaklega vel með skóla.

Auglýsing birt10. maí 2021
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Klapparhlíð 9, 270 Mosfellsbær
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.ÖkuréttindiPathCreated with Sketch.Reyklaus
Hentugt fyrir
Starfsgreinar
Starfsmerkingar