

Netöryggisstjóri
Festi leitar að öflugum netöryggissérfræðingi í upplýsingatæknideild félagsins. Við leitum að metnaðarfullum tæknisérfræðingi með brennandi áhuga á netöryggi til starfa í öflugu rekstrarteymi. Viðkomandi mun hafa umsjón með netöryggismálum Festi og dótturfélaga og taka þátt í að styrkja og þróa netöryggi samstæðunnar.
Festi er eignarhaldsfélag leiðandi fyrirtækja sem gegna mikilvægu hlutverki í íslensku samfélagi. Starfsemi móðurfélagsins snýr að fjárfestingum og stoðþjónustu við dótturfélögin ELKO, Krónuna, N1, Lyfju, Yrki fasteignir og Bakkann vöruhótel.<br>Innan upplýsingatæknideildar starfa sérfræðingar sem þróa og reka lausnir sem margir þekkja, svo sem vefverslun ELKO, snjallverslun Krónunnar, Krónu appið, N1 vefverslun og N1 appið.
Helstu verkefni
- Umsjón með öryggislausnum og netöryggisverkfærum
- Viðhald viðbragðsáætlana
- Skipulagning viðbragðsæfinga
- Umsjón með fræðslu í netöryggismálum
- Samskipti við þjónustu- og samstarfsaðila
- Stuðningur við kerfisstjóra
- Markviss vinna að auknu öryggi tölvuumhverfis
Hæfniskröfur
- Minnst fimm ára reynsla af kerfisstjórn
- Reynsla og góð þekking á netöryggismálum
- Þekking á rekstri netþjóna- og skýjaumhverfa
- Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
- Góð samskiptafærni
- Háskóla- eða tæknimenntun sem nýtist í starfi
Festi leggur áherslu á að skapa spennandi og líflegt starfsumhverfi þar sem hæfileikar starfsfólks fá að njóta sín. Boðið er upp á sveigjanleika í starfi og lögð áhersla á jafnvægi milli vinnu og einkalífs. Velferð starfsfólks er í fyrirrúmi og felur velferðarpakki félagsins í sér fjölbreytta heilsueflandi þjónustu. Starfsfólk nýtur jafnframt góðra kjara á vörum og þjónustu hjá ELKO, Krónunni, Lyfju og N1.
Umsóknarfrestur er til og með 4. maí 2026.
Nánari upplýsingar veitir Linda Kristmannsdóttir, forstöðumaður upplýsingatækni, [email protected].
Farið er með allar umsóknir sem trúnaðarmál.
Íslenska
Enska










