
Norðurál
Norðurál, sem rekur álver á Grundartanga, var valið Umhverfisfyrirtæki ársins 2022 af Samtökum atvinnulífsins. Framþróun grænnar álframleiðslu mun hafa raunveruleg áhrif á útblástur gróðurhúslofttegunda á heimsvísu. Íslenski áliðnaðurinn er ein stærsta útflutningsgrein landsins og ein af grunnstoðum íslensks efnahagslífs.
Álið okkar, Natur-Al, skilur eftir sig eitt minnsta kolefnisspor í heimi. Þegar litið er á ferlið í heild, frá vinnslu hráefna til afhendingar fullunninnar vöru, nemur kolefnisspor áls frá Norðuráli einungis um fjórðung af heimsmeðaltalinu. Við stefnum að því að verða fyrsta álver í heiminum sem framleiðir kolefnishlutlaust ál.
Hjá Norðuráli leggjum við áherslu á virðingu fyrir mannréttindum, samfélagi og umhverfi. Öryggi, heilbrigði og vellíðan starfsfólks er í fyrirrúmi og lögð er áhersla á jafnan rétt starfsfólks til starfsframa, launa og réttinda.
Hjá Norðuráli starfa um 600 fastráðin, þar af 350 í vaktavinnu, 150 sérfræðingar með fjölbreytta menntun og 100 í iðnaðarstörfum. Til viðbótar eru um 150 í afleysingum.
Norðurál er ASI vottað sem staðfestir að fyrirtækið stenst ítrustu kröfur um samfélagslega ábyrgð, heiðarlega viðskiptahætti, umhverfisvænt hráefni og framleiðslu. Gæðastjórnunarkerfi Norðuráls er vottað samkvæmt alþjóðlega ISO 9001 staðlinum og umhverfis- og öryggisstjórnunarkerfi fyrirtækisins eru vottuð samkvæmt ISO 14001 og ISO 45001 stöðlum. Norðurál er jafnlaunavottað fyrirtæki og er handhafi gullmerkis PWC.

Spennandi sumarstörf háskólanema
Norðurál leitar að jákvæðum, metnaðarfullum og ábyrgum háskólanemum í sumarstörf. Við leitum að fólki í fjölbreytt og spennandi störf á ólíkum sviðum innan fyrirtækisins. Vilt þú starfa með okkur á Grundartanga í sumar?
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólanemar í verkfræði, tæknifræði, tölvunarfræði og viðskiptafræði eða öðru sem nýtist í starfi
- Heiðarleiki og stundvísi
- Dugnaður og sjálfstæði
- Bílpróf er skilyrði
Fríðindi í starfi
- Ferðir til og frá Akranesi, Borgarnesi og af höfuðborgarsvæðinu
Auglýsing birt20. apríl 2026
Umsóknarfrestur10. maí 2026
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Grundartangahöfn lóð 12, 301 Akranes
Starfstegund
Hæfni
Almenn ökuréttindiÁreiðanleikiJákvæðniMannleg samskiptiNákvæmniSamviskusemiSkipulagStundvísi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (1)
Sambærileg störf (12)

Sumarstarf Verkefnastjórnunarsvið
Stólpi

Sérfræðingur í kerfisgreiningum
Landsnet hf.

Viltu byggja upp framtíð vindorku á Íslandi?
Landsvirkjun

Tech Lead – Travel
Icelandair

Hópstjóri Kerfisrekstrar
TACTICA

Langar þig að vera AI Orchestrator
TACTICA

Sumarstarf - Marketplace samþættingar
50skills

Ráðgjafi í Fjármálaráðgjöf Deloitte
Deloitte

Ráðgjafi með áherslu á fjárhagslegar áreiðanleikakannanir
Deloitte

Deildarstjóri umsjónardeildar á Austursvæði
Vegagerðin

Ráðgjafi með áherslu á kaup- og söluferli fyrirtækja
Deloitte

Tæknistjóri hugbúnaðarþróunar
Reykjavíkurborg