

AI forritari
Nova leitar að metnaðarfullum AI forritara sem vill taka þátt í að þróa lausnir sem gera líf viðskiptavina einfaldara, hraðara og betra – á hverjum degi 🚀 Í þessu hlutverki vinnur þú að þróun og viðhaldi gervigreindarlausna Nova sem snúa beint að viðskiptavinum.
Í þessu hlutverki vinnur þú að þróun og viðhaldi gervigreindarlausna Nova sem snúa beint að viðskiptavinum, þar á meðal snjallmenni (chatbot) og öðrum AI-drifnum snertiflötum. Þú munt meðal annars kafa ofan í útfærslu samtalsflæða (conversation design) og þróa hvernig módelið bregst við fyrirspurnum. Markmiðið er skýrt: að nýta gervigreind til að skapa framúrskarandi þjónustuupplifun sem fólk finnur raunverulega fyrir.
Þú verður hluti af öflugu og metnaðarfullu teymi sem ber ábyrgð á stafrænum lausnum Nova. Þar færðu svigrúm til að prófa nýjar hugmyndir, hafa áhrif á stefnu og sjá lausnir þínar fara í notkun – ekki bara á teikniborðinu.
Við leitum að einstaklingi sem:
- Hefur brennandi áhuga á gervigreind og stafrænum lausnum
- Vill nýta tæknina til að bæta upplifun fólks, ekki bara byggja kerfi
- Þrífst í samstarfi og vill vera hluti af teymi sem lærir og þróast saman
Hjá Nova færðu tækifæri til að vinna með nýjustu tækni, taka þátt í spennandi umbreytingu og hafa raunveruleg áhrif á hvernig þjónusta lítur út í dag og til framtíðar.
• Þróun og viðhald á snjallmennis-lausnum byggðum á LLM
• Hönnun og útfærsla samtalsflæða (conversation design)
• Samþætting við innri kerfi og þjónustur
• Greining og stöðug umbótavinna á upplifun notenda
• Þátttaka í þróun á stafrænum vörum og lausnum fyrirtækisins
• Mótun kerfishögunar gervigreindarlausna
Íslenska










