

Myndmenntakennari– Hvaleyrarskóli
Hvaleyrarskóli auglýsir eftir myndmenntakennara í 80-100% starf.
Í Hvaleyrarskóla eru um 400 nemendur í 1. til 10. bekk. Einkunnarorð skólans eru ábyrgð, kurteisi og samvinna og endurspeglast allt skólastarfið í þessum orðum. Í skólanum er unnið samkvæmt SMT-skólafærni sem þýðir að áhersla er lögð á að nálgast nemendur á jákvæðan hátt, gefa góðri hegðun meiri gaum og skapa þannig jákvæðan skólabrag. Hvaleyrarskóli er jafnframt heilsueflandi grunnskóli og vinnur eftir Olweusaráætluninni gegn einelti. Hvaleyrarskóli er skóli margbreytileikans þar sem lögð er rækt við fjölmenningu. Einkunnarorð Hvaleyrarskóla eru kurteisi, ábyrgð og samvinna.
Skólinn vinnur samkvæmt hugmyndafræði SMT, Olweus, byrjendalæsis og orð af orði ásamt áherslu á skák- og sviðslistarkennslu.
Nánari upplýsingar um skólann má einnig finna á heimasíðunni http://www.hvaleyrarskoli.is.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Annast kennslu í myndmennt
- Vinna að þróun skólastarfs í samstarfi við stjórnendur og samstarfsfólk með áherslu á teymisvinnu
- Starfa eftir Aðalnámskrá grunnskóla
- Stuðla að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og annað fagfólk
- Vinna samkvæmt stefnu skólans í SMT skólafærni til að skapa gott andrúmsloft í skólum og tryggja öryggi og velferð nemenda og starfsfólks
- Önnur verkefni skv. starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Leyfisbréf til kennslu (leyfisbréf fylgi umsókn)
- Fagleg þekking á sviði myndmenntakennslu
- Frumkvæði og skipulögð vinnubrögð
- Jákvæðni og áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi
- Mjög góð íslenskukunnátta
- Lipurð og jákvæðni í samskiptum og sveigjanleiki í starfi
- Víðtæk tölvukunnátta og góð þekking á G-suite og Mentor
- Áhugi á teymiskennslu og þverfaglegu samstarfi
Nánari upplýsingar um starfið veita Kristinn Guðlaugsson, skólastjóri, [email protected] í síma 664 5833 eða Vala Stefánsdóttir, aðstoðarskólastjóri, [email protected] síma 868 6859. Sími skólans er 565 0200.
Umsóknarfrestur er framlengdur til og með 24. apríl næst komandi. Greinagóð ferilsskrá fylgi umsókn.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ.
Ráðið er í stöðuna frá 1. ágúst 2025.
Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.













































