
Skólamatur
Skólamatur ehf. er fjölskyldufyrirtæki sem sérhæfir sig í framleiðslu og framreiðslu á hollum og ferskum mat, elduðum frá grunni fyrir leik- og grunnskóla.
Skólamatur ehf. var stofnað í janúar 2007. Fyrirtækið er í eigu Axels Jónssonar matreiðslumeistara sem hefur áratuga reynslu af alhliða veitingarekstri.
Hjá Skólamat starfa um 200 starfsmenn. Starfsmannavelta fyrirtækisins er lág og starfsaldur hár. Rúmlega helmingur núverandi starfsmanna hefur unnið í 5 ár eða lengur hjá fyrirtækinu.
Skólamatur leggur áherslu á að skapa fjölskylduvænt vinnuumhverfi þar sem hæfileikar, þekking og reynsla hvers starfsmanns fær að njóta sín. Við leggjum áherslu á símenntun og fræðslu og að starfsmenn fái tækifæri til þess að eflast og þróast í starfi.
Markmið Skólamatar er að ráða, efla og halda hæfu og reynslumiklu starfsfólki.
Gildi Skólamatar eru: Jákvæðni, fjölskylda og virðing.

Mötuneyti Setbergsskóli
Skólamatur leitar að jákvæðu og duglegu starfsfólki í mötuneyti sitt í Setbergsskóla í Hafnarfirði.
Vinnutíminn er frá kl.9:00 til 14:00 alla virka skóladaga.
Starfið felst í lokaeldun hádegismáltíða, undirbúningi og afgreiðslu máltíða og frágangi ásamt léttum þrifum i eldhúsi. Starfsmenn mötuneyta panta inn af pöntunarvef Skólamatar og senda inn dagsskýrslur.
Hæfniskröfur:
- Reynsla úr sambærilegu starfi æskileg.
- Menntun sem nýtist í starfi kostur.
- Góð íslenskukunnátta skilyrði.
- Jákvæðni, snyrtimennska, stundvísi og sjálfstæð vinnubrögð.
Umsækjendur eru beðnir að skila inn ferilskrá með upplýsingum um reynslu/menntun og fyrri störf.
Öll kyn eru hvött til að sækja um starfið.
Óskað er eftir að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Fyrirspurnir um starfið berist á [email protected].
Skólamatur ehf. er fjölskylduvænt fyrirtæki sem sérhæfir sig í framleiðslu og framreiðslu á máltíðum fyrir mikilvægasta fólkið.
Auglýsing birt8. desember 2023
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Hlíðarberg 2, 221 Hafnarfjörður
Starfstegund
Hæfni
JákvæðniSamviskusemiSjálfstæð vinnubrögðSveigjanleiki
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Matreiðslumaður/Kokkur
Í-Mat ehf.

Afgreiðsla og almenn verslunarstörf
Bjarnabúð

Vaktstjóri í Eldhús - Vaktavinna
Ráðagerði Veitingahús

Sölufulltrúi 66° Norður
66°North

Matreiðslumaður í Sælkeramat
Sælkeramatur ehf.

Helgarkokkur í morgunverð / Weekend breakfast chef, 360 Hótel Selfoss
360 Hótel

Verkefnafulltrúi í skaðaminnkunar verkefni - Frú Ragnheiður 50%
Rauði krossinn á höfuðborgarsvæðinu

Þjónustulipur bílstjóri óskast til aksturs fyrir fatlaða og eldri borgara
Teitur

Vaktstjóri á þjónustuborð - Helgarstarf
BAUHAUS slhf.

Hlutastastarf í mötuneyti í Hafnarfirði
Matarstund

Starfsmaður óskast í verslun Fyrir Ísland á Keflav.flugvelli
Margt Smátt

Sölufulltrúi 66° Norður Akureyri
66°North