

Vaktstjóri í Eldhús - Vaktavinna
Titill: Vaktstjóri í eldhús hjá Ráðagerði Veitingahúsi
Ert þú skipulagður matreiðslumaður eða eldhúsmanneskja með leiðtogahæfileika?
Ráðagerði Veitingahús á Seltjarnarnesi leitar að öflugum og lausnamiðuðum vaktstjóra til að ganga til liðs við okkar frábæra teymi í eldhúsinu.
Helstu verkefni og ábyrgð:
-
Dagleg stjórnun og skipulagning á vöktum í eldhúsi.
-
Undirbúningur og eldun rétta samkvæmt stöðlum og uppskriftum staðarins.
-
Eftirlit með gæðum matvæla, hráefnisnýtingu og vörupöntunum.
-
Ábyrgð á hreinlæti og innra eftirliti (HACCP) í eldhúsi.
-
Þjálfun, leiðsögn og hvatning til annarra starfsmanna í eldhúsi.
-
Samstarf við framreiðslu til að tryggja hnökralausa þjónustu og góða upplifun gesta.
Hæfnikröfur:
-
Reynsla af störfum í eldhúsi er skilyrði.
-
Skipulagshæfni og sjálfstæði í vinnubrögðum.
-
Jákvætt viðhorf til samstarfsfólks.
-
Geta til að vinna undir álagi með bros á vör.
Starfshlutfall og vinnutími: Um er að ræða fullt starf í 3-2-2 vaktakerfi
Viðkomandi þarf að geta hafið störf í janúar eða 1. febrúar í síðasta lagi.
Einungis verður tekið á móti umsóknum í gegnum alfred.is
Íslenska
Enska










