
Mörk hjúkrunarheimili
Á Mörk hjúkrunarheimili búa 113 heimilismenn á ellefu notalegum heimilum. Mörk starfar eftir Eden hugmyndafræðinni.
Mörk hjúkrunarheimili er hluti af Grundarheimilunum en þar starfar stór og samheldinn hópur starfsmanna að því að hlúa að öldruðum af alúð.
Markmið Grundarheimilanna er að vera eftirsóttur vinnustaður þar sem vellíðan, virðing og vinátta eru höfð að leiðarljósi í samskiptum og lögð er áhersla á góðan vinnuanda, sjálfstæð vinnubrögð og heimilislegt umhverfi.

Mörk - Laus störf við umönnun
Hjúkrunarheimili Markar óskar eftir hressu og duglegu starfsfólki til að starfa með okkur við umönnun aldraðra.
Í boði er skemmtilegt og gefandi starf við umönnun aldraðra. Ýmsir möguleikar á starfshlutfalli eru í boði þar sem unnar eru blandaðar vaktir í góðum hóp starfsmanna.
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Góð íslenskukunnátta
- Góðir samskiptahæfileikar og jákvæðni
- Starfsmaður þarf að hafa náð 18 ára aldri
- Stundvísi og metnaður í starfi
- Reynsla í umönnun er mikill kostur
Greitt er eftir kjarasamningi Eflingar og Samtaka fyrirtækja í velferðarþjónustu.
Í Mörk er unnið metnaðarfullt starf þar sem heimilismenn og starfsfólk vinna saman að því að skapa öruggt og heimilislegt umhverfi og rík áhersla er lögð á sjálfsákvörðunarrétt heimilismanna og þátttöku þeirra.
Nánari upplýsingar um starfið veitir:
Mannauðsdeild Grundarhjúkrunarheimilanna
[email protected]
Við hlökkum til að heyra í þér !
Auglýsing birt28. desember 2021
Umsóknarfrestur16. janúar 2022
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Suðurlandsbraut 66, 108 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
JákvæðniMetnaðurStundvísiUmönnun (barna/aldraðra/fatlaðra)
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Óska eftir hressum húmoristum í teymið mitt!
NPA miðstöðin

Starfsmaður á heimili fyrir fatlað fólk - Arnarhraun
Hafnarfjarðarbær

Starfsmaður óskast í afleysingu í Miðstöðina - úrræði fyrir fatlað fólk
Hafnarfjarðarbær

Aðstoðarkona óskast
NPA miðstöðin

Óska eftir aðstoðarkonu í hlutastarf á föstudögum og afleysingar.
NPA miðstöðin

Starfsmenn í heimaþjónustu í Fjarðabyggð
Heimaþjónusta Fjarðabyggðar

Starfsmaður á hæfingarstöð í Kópavogi
Hæfingarstöðin Dalvegi

Starfsfólk óskast í stoð- og stuðningsþjónustu fyrir fullorðið fatlað fólk
Velferðarsvið Kópavogsbæjar

Stuðningsaðili á Velferðarsviði
Kópavogsbær

Spennandi starf í búsetu- og utankjarna þjónustu fyrir fólk með geðrænar áskoranir
Velferðarsvið Kópavogsbæjar

Verkefnastjóri skráninga
Lyfjastofnun

Viðskiptastjóri hjá Icepharma Velferð
Icepharma