KeyNatura
KeyNatura

Markaðsstjóri

Við leitum að einstaklingi til að leiða markaðsdeild SagaNatura. Viðkomandi þarf að vera lausnamiðaður, hugmyndaríkur og til í áskoranir. Um 100% starf er að ræða.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Ber ábyrgð á mótun stefnu og markmiða markaðsdeildar
  • Ber ábyrgð á markaðs- og kostnaðaráætlunum
  • Ber ábyrgð á framkvæmd og eftirfylgni markaðsáætlunar
  • Ber ábyrgð á daglegum rekstri og stjórnun markaðsdeildar
  • Er í samskiptum við auglýsingastofur, ljósmyndara og aðra fagaðila á sviði markaðsmála
  • Kemur að skipulagi viðburða og sýninga erlendis

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Háskólamenntun á sviði viðskipta- og/eða markaðsfræða
  • Framhaldsmenntun á sviði markaðsfræða er kostur
  • Starfsreynsla af markaðsmálum
  • Kunnátta og reynsla af stafrænni markaðssetningu
  • Kunnátta á helstu hönnunarforrit er kostur. Til dæmis Photoshop, Illustrator og InDesign.
  • Hugmyndaauðgi og metnaður til að ná árangri í starfi
  • Frumkvæði, drifkrafur og skipulagshæfni
  • Mjög góð samskiptafærni
  • Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti á íslensku og ensku

Áhugasamir umsækjendur sendi ferilskrá ásamt nánari upplýsingum á netfangið [email protected] fyrir 23. apríl n.k.

Auglýsing birt8. apríl 2021
Umsóknarfrestur23. apríl 2021
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Suðurhella 8, 221 Hafnarfjörður
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar