Stjórnsýsla Mosfellsbæjar
Stjórnsýsla Mosfellsbæjar
Stjórnsýsla Mosfellsbæjar

Mannauðsráðgjafi í fræðslu- og frístundamálum

Mosfellsbær óskar eftir öflugum og metnaðarfullum mannauðsráðgjafa til starfa í fullt starf.

Um er að ræða fjölbreytt starf með krefjandi verkefnum, þar sem reynir á frumkvæði, sjálfstæði og skipulag í vinnubrögðum.

Mannauðsráðgjafinn er hluti af teymi mannauðs- og starfumhverfissviðs og sinnir einkum ráðgjöf við ráðningar, launasetningu og mannauðstengdum stuðningi við stjórnendur á fræðslu- og frístundasviði Mosfellsbæjar. Hjá Mosfellsbæ leggjum við mikla áherslu á að sækja fram, innleiða nýjungar og umbætur, einfalda ferla og gera þjónustu til stjórnenda og starfsmanna skilvirkari og betri.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Stuðningur, ráðgjöf og fræðsla til stjórnenda á fræðslu- og frístundasviði varðandi mannauðstengd mál og framkvæmd þeirra.
  • Túlkun, ráðgjöf og framkvæmd kjarasamninga tengdum skólaumhverfi.
  • Eftirfylgni með framkvæmd mannauðsmála á fræðslu- og frístundasviði og tillögugerð um úrbætur þar sem við á.
  • Hefur frumkvæði að framþróun og nýsköpun í mannauðsmálum.
  • Stuðningur við stjórnendur í breytingastjórnun.
  • Verkefnastjórnun og þátttaka í starfshópum á sviði mannauðsmála.
  • Kemur að vinnu við jafnlaunavottun.
  • Önnur verkefni sem yfirmaður felur starfsmanni.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun (B.A./B.S) sem nýtist í starfi.
  • Framhaldsháskólamenntun sem nýtist í starfi, meistarapróf á sviði mannauðsstjórnunar mikill kostur.
  • Þekking og reynsla af opinberri stjórnsýslu æskileg.
  • Góð reynsla af mannauðsmálum, ráðgjöf til stjórnenda og túlkun kjarasamninga.
  • Góð reynsla af ráðningum innan opinberrar stjórnsýslu.
  • Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum.
  • Frumkvæði, sjálfstæði og skipulagshæfileikar.
  • Góð íslensku- og enskukunnátta.
Auglýsing birt20. febrúar 2024
Umsóknarfrestur12. mars 2024
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Þverholt 2, 270 Mosfellsbær
Starfstegund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar