A4
A4
A4

Mannauðsstjóri A4 – tímabundið starf

Við leitum að öflugum og drífandi mannauðsstjóra til að leiða mannauðsmál A4 í fjölbreyttu og lifandi starfsumhverfi.

Mannauðsstjóri gegnir lykilhlutverki í að styðja við stjórnendur og starfsfólk og tryggja að mannauðsmál séu í takt við stefnu, markmið og menningu fyrirtækisins. Starfið er fjölbreytt og felur í sér bæði stefnumótandi og dagleg mannauðsverkefni. Mannauðsstjóri á sæti í framkvæmdastjórn félagsins.

Um er að ræða tímabundið starf til 12 mánaða og er æskilegt að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Yfirumsjón og stjórnun mannauðsmála
  • Ráðgjöf og stuðningur við stjórnendur og starfsfólk
  • Ráðningar, móttaka nýliða og nýliðaþjálfun í samstarfi við stjórnendur
  • Stefnumótun, þróun og eftirfylgni mannauðsstefnu
  • Mótun fræðslustefnu og eftirfylgni með fræðsluáætlun
  • Þróun ferla og umbætur á sviði mannauðsmála
  • Ábyrgð á jafnlaunastaðli og eftirfylgn
  • Öryggismál
  • Launa- og kjaramál, túlkun kjarasamninga og samskipti við stéttarfélög varðandi réttindi starfsfólks

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Háskólapróf sem nýtist í starfi
  • Góð reynsla og þekking á mannauðsstjórnun
  • Reynsla af ráðgjöf við stjórnendur
  • Framúrskarandi samskipta- og samstarfshæfni
  • Frumkvæði, skipulagshæfni og sjálfstæði í starfi
  • Traust og fagleg framkoma
  • Reynsla af kjarasamningum, jafnlaunamálum eða stefnumótunarvinnu er kostur

Umsóknarfrestur er til og með 10. nóvember 2026.

Upplýsingar um starfið veitir Thelma Dögg Ingadóttir, mannauðsstjóri í síma 663-5116 eða í [email protected].

A4 er framsækið fyrirtæki sem leggur metnað sinn í að vera í fararbroddi á sviði skrifstofu- og skólavara, skapandi vara, ferðavara og húsgagna. A4 leggur áherslu á góða og trausta þjónustu við viðskiptavini. Við erum stolt af því að geta boðið upp á heimsþekkt vörumerki sem eiga það öll sameiginlegt að vera í háum gæðaflokki. A4 rekur einnig Kubbabúðina í Smáralind. Hjá fyrirtækinu starfa um 130 starfsmenn.

Auglýsing birt3. nóvember 2026
Umsóknarfrestur10. nóvember 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Köllunarklettsvegur 10, 104 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.DrifkrafturPathCreated with Sketch.FagmennskaPathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.HeiðarleikiPathCreated with Sketch.Hreint sakavottorðPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.Microsoft 365PathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.SnyrtimennskaPathCreated with Sketch.SveigjanleikiPathCreated with Sketch.TeymisvinnaPathCreated with Sketch.Vinna undir álagi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar