
Garðabær
Garðabær leggur áherslu á að veita íbúum bæjarins framúrskarandi þjónustu og sækist eftir að ráða til starfa metnaðarfulla og færa einstaklinga sem eru jákvæðir, faglegir og áreiðanlegir.
Starfsemi bæjarins býður upp á mörg skapandi, fjölbreytt og skemmtileg störf í lifandi umhverfi.

Mánahvoll óskar eftir leikskólakennurum
Viltu taka þátt í þróun náms fyrir yngstu börn leikskólans?
Mánahvoll er nýr ungbarnaleikskóli í Garðabæ. Starfsemin byggir m.a. á þróunarverkefni sem unnið hefur verið að undanfarin 3 ár með Háskóla Íslands um nám yngstu barna leikskólans. Meðal markmiða þess verkefnis er að skapa sérþekkingu á samskipta- og tjáningarmáta barna og móta áherslur námsumhverfisins í samræmi við það. Dagskipulagið byggir á þörfum barnanna og leiðum til að tryggja vellíðan þeirra. Áhugasömum gefst tækifæri til að starfa í lærdómssamfélagi þar sem sjónum er beint að faglegri þróun.
Menntunar- og hæfniskröfur
Leyfisbréf til kennslu* (leyfisbréf fylgi umsókn)
Að lágmarki 90 námseiningar á einu námssviði aðalnámskrár og menntunarfræði leikskóla
Reynsla af starfi á leikskólastigi eða starfi með börnum er æskileg
Góð íslenskukunnátta er skilyrði
Góð samskiptahæfni
Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
Helstu verkefni og ábyrgð
Vinnur með og undir deildarstjóra
Vinnur að uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt starfslýsingu leikskólakennara
Auglýsing birt23. september 2021
Umsóknarfrestur31. október 2021
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Garðatorg 7, 210 Garðabær
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Sérkennslustjóri - Leikskólinn Hvammur
Hafnarfjarðarbær

Umsjónarkennari í unglingadeild – Skarðshlíðarskóli
Hafnarfjarðarbær

Sérkennari/þroskaþjálfi - Leikskólinn Hörðuvellir
Hafnarfjarðarbær

Kennarar – Leikskólinn Hörðuvellir
Hafnarfjarðarbær

Deildarstjóri - Leikskólinn Hvammur
Hafnarfjarðarbær

Leikskólakennari í leikskólann Núp
Núpur

Vegna forfalla óskast kennarar til starfa við Djúpavogsskóla
Djúpavogsskóli

Óskum eftir leikskólakennara í Ævintýraborg við Nauthólsveg
Ævintýraborg við Nauthólsveg

Íslensku- og stærðfræðikennari í unglingadeild í Seljaskóla
Seljaskóli

Velferðarsvið – Teymisstjóri í Barna- og fjölskylduteymi
Reykjanesbær

Leikskólakennari og/eða leiðbeinandi í 100% stöðu
Svalbarðsstrandarhreppur

Viltu koma og starfa með geggjuðum hóp í Austurkór
Austurkór