

Lyfja - afgreiðsluflakkari
Við leitum að hressum, skemmtilegum og sjálfstæðum starfsmanni til að sinna afleysingum í lyfjaverslunum okkar á Höfuðborgarsvæðinu.
Um er að ræða hefðbundið starf við sölu og afgreiðslu nema hvað viðkomandi starfsmaður flakkar á milli verslana höfuðborgarsvæðisins. Starfið felst í ráðgjöf til viðskiptavina um val á vörum, afgreiðslu á kassa, afhendingu lyfja gegn lyfseðli, afgreiðslu á lausasölulyfjum og ráðgjöf um val og notkun þeirra.
Helstu verkefni:
- Almenn afgreiðslustörf
- Ráðgjöf til viðskiptavina um val á vörum
- Afgreiðsla á kassa
- Afhending lyfja gegn lyfseðli
- Afgreiðsla á lausasölulyfjum og ráðgjöf um val og notkun þeirra
- Aðstoð við vörumóttöku og áfyllingar í verslun
Hæfniskröfur:
- Rík þjónustulund
- Áhugi á mannlegum samskiptum
- Jákvæðni og gott viðmót
- Geta til að starfa undir álagi
- Reynsla af verslunarstörfum er kostur
- Reynsla af störfum í apóteki er kostur
Vinnutími er 8-16 / 10-18 virka daga eða eftir samkomulagi. Einnig hægt að taka kvöld og helgarvaktir.
Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.
Allir umsækjendur þurfa að hafa ágæta íslensku- og enskukunnáttu og vera að minnsta kosti 20 ára.
Nánari upplýsingar veita Hildur Þórisdóttir, Mannauðsstjóri, [email protected] / 530 3800 og Sigrún Erlendsdóttir, sérfræðingur í mannauðsmálum, [email protected] / 530 3800.
Farið er með allar umsóknir sem trúnaðarmál.



















