

Lögfræðingur hjá Persónuvernd
Persónuvernd leitar að drífandi og kraftmiklum lögfræðingi sem er tilbúinn að takast á við fjölbreytt og krefjandi verkefni í samhentu teymi stofnunarinnar. Fjölbreytni þeirra mála sem eru til meðferðar hjá Persónuvernd er mikil – allt frá rafrænni vöktun á vinnustöðum til álitamála sem tengjast vísindarannsóknum á heilbrigðissviði – og varða þau oft grundvallaratriði í íslensku samfélagi. Mikið er lagt upp úr frumkvæði, ábyrgð og getu starfsmanna til að sinna krefjandi verkefnum í öflugu teymi lögfræðinga stofnunarinnar.
Um 100% starf er að ræða. Ráðið verður í starfið frá 1. mars 2022 eða samkvæmt samkomulagi en æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Persónuvernd er sjálfstætt stjórnvald sem annast eftirlit með framkvæmd laga nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga, laga nr. 75/2019 um vinnslu persónuupplýsinga í löggæslutilgangi og reglna settra samkvæmt þeim. Persónuvernd er fjölskylduvænn vinnustaður.





