Marel
Marel
Marel

Liðsfélagi í hóp rennismiða

JBT Marel leitar að kraftmiklum liðsfélaga til starfa í hóp rennismiða við framleiðslu á fjölbreyttum íhlutum í hátæknibúnað til matvælavinnslu.
Unnið er á vöktum og allir nýir starfsmenn fá þjálfun. Renniverkstæði okkar er vel tækjum búið, að mestu frá DMG. Við bjóðum m.a. upp á faglegt fyrsta flokks vinnuumhverfi, frábært mötuneyti með heitum mat í hádeginu og aðstöðu til líkamsræktar.

Framleiðsla JBT Marel í Garðabæ sérhæfir sig í stuðningi við vöruþróun og framleiðslu á sérhönnuðum verkefnum fyrir okkar viðskiptavini.


Starfið felur í sér:

· Smíði á renndum og fræstum íhlutum

· Mælingar og gæðaskoðun á framleiddum íhlutum

· Almennt viðhald og umsjón með tækjakosti

Hæfniskröfur:

· Sveinspróf í rennismíði (nemar koma til greina)

· Góð íslenskukunnátta í töluðu og rituðu máli er skilyrði

· Tölvuþekking og áhugi á tækniþróun

· Góð færni í samskiptum og áhugi á teymisvinnu

· Samviskusemi, metnaður og góð öryggisvitund

· Jákvæðni, almenn lífsgleði og lausnamiðuð hugsun

· Áhugi á umbótastarfi (stöðugum umbótum og SMED)

· Áhugi á að vaxa og læra

Áhugasamir einstaklingar án tillits til kyns eru hvattir til að sækja um starfið. Nánari upplýsingar um starfið veitir Heiðrún Hreiðarsdóttir, [email protected].

Umsóknarfrestur er til og með 17. júní 2025. Sótt er um starfið á heimasíðu Marel (www.marel.com).

Auglýsing birt28. maí 2025
Umsóknarfrestur17. júní 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Austurhraun 9, 210 Garðabær
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.SamviskusemiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.Teymisvinna
Starfsgreinar
Starfsmerkingar