Leikskólinn Strandheimar
Leikskólinn Strandheimar
Leikskólinn Strandheimar

Leikskólinn Strandheimar auglýsir eftir deildarstjórum

Viltu leiða starf með börnum og starfsfólki í umhverfi þar sem vellíðan, sköpun og virðing eru leiðarljós daglegs starfs?

Leikskólinn Strandheimar leitar að deildarstjórum til starfa frá hausti 2026 (eða eftir nánara samkomulagi).

Strandheimar starfa á tveimur starfsstöðvum, Brimveri á Eyrarbakka og Æskukoti á Stokkseyri. Við erum lítill leikskóli með sterka faglega sýn þar sem lögð er áhersla á náin tengsl, samvinnu og ígrundun í starfi.

Deildarstjóri ber ábyrgð á daglegu starfi deildar og leiðir faglegt starf í samstarfi við stjórnendur og starfsfólk.

Í Strandheimum leggjum við áherslu á:

  • Heilsueflandi leikskóla
  • Jákvæðan aga
  • Hæglæti í leiðtogastarfi og daglegum samskiptum

Í Sveitarfélaginu Árborg búa rúmlega 12.000 íbúar og starfa um 1100 manns hjá sveitarfélaginu. Lögð er áhersla á að skapa starfsumhverfi sem stuðlar að vellíðan og árangri þar sem starfað er af fagmennsku og góðum ásetningi með hag sveitarfélagsins að leiðarljósi.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Að leiða og bera ábyrgð á faglegu starfi deildar
  • Að skipuleggja og fylgja eftir uppeldis- og menntastarfi
  • Að styðja við og leiðbeina starfsfólki í daglegu starfi
  • Að efla jákvætt og traust samstarf við foreldra
  • Að taka þátt í þróunarstarfi og faglegri ígrundun
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Leyfisbréf sem leikskólakennari
  • Reynsla af starfi í leikskóla
  • Leiðtogahæfni og færni í teymisvinnu
  • Góð íslenskukunnátta

Við leitum að einstaklingi sem:

  • hefur skýra faglega sýn og áhuga á að leiða starf með börnum
  • er jákvæður, lausnamiðaður og styður við teymisvinnu
  • hefur hæfni í samskiptum og vill byggja upp traust og gott starfsumhverfi
  • hefur áhuga á þróun og ígrundun í starfi
Auglýsing birt7. apríl 2026
Umsóknarfrestur20. apríl 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Túngata 39
Blómsturvellir 1
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.Teymisvinna
Starfsgreinar
Starfsmerkingar