
Klettaskóli
Klettaskóli - Kennari eða þroskaþjálfi í þátttökubekk í Árbæjarskóla
Við leitum að kennara eða þroskaþjálfa fyrir þátttökubekk Klettaskóla sem staðsettur er í Árbæjarskóla. Viðkomandi þarf að byrja sem fyrst.
Klettaskóli er sérskóli fyrir nemendur með þroskahömlun og viðbótarfatlanir. Starfsmenn vinna í teymum og þurfa að hafa góða samstarfs- og samskiptahæfni, vera sveigjanlegir og tilbúnir að takast á við krefjandi en gefandi verkefni. Einkunnarorð skólans eru "Menntun fyrir lífið". Nám og kennsla nemenda er einstaklingsmiðuð þar sem byggt er á forsendum og styrkleikum hvers og eins nemanda.
Í þátttökubekknum eru 7 nemendur sem fá sérhæft námsúrræði undir stjórn Klettaskóla. Bekkurinn er með aðsetur í almennum grunnskóla. Í bekknum starfa nú þegar einn kennari og þrír stuðningsfulltrúar.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Starfa í þverfaglegu teymi sem sér um skipulag og framkvæmd kennslu í bekknum
- Vinna einstaklingsnámskrár og námsmat
- Samstarf við foreldra og aðra fagaðila
- Vinna samkvæmt stefnu skólans og taka þátt í skólaþróunarvinnu
Menntunar- og hæfniskröfur
- Starfsleyfi til að starfa sem grunnskólakennari/þroskaþjálfi, starfsleyfi fylgi umsókn
- Sveigjanleiki og framúrskarandi hæfni í samskiptum
- Hæfni til að vinna í teymi
- Áhugi á að starfa með börnum
- Faglegur metnaður og frumkvæði í starfi
- Lausnarmiðuð hugsun
- Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
- Stundvísi
- Góð íslenskukunnátta
Auglýsing birt7. apríl 2026
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Starfstegund
Hæfni
KennariKennsla
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (4)
Sambærileg störf (12)

Umsjónarkennari í 1. bekk – Lækjarskóli
Hafnarfjarðarbær

Umsjónarkennsla á yngsta stigi
Grunnskólinn í Hveragerði

Textílkennari - Öldutúnsskóli
Hafnarfjarðarbær

Sjálandsskóli - umsjónarkennari á miðstig
Garðabær

Sjálandsskóli - umsjónarkennari á yngsta stig
Garðabær

Deildarstjóri - HOLT
Leikskólinn Holt

Leikskólakennari óskast
Leikskólinn Tjarnarskógur

Störf kennara við Þjórsárskóla fyrir skólaárið 2026-2027
Þjórsárskóli

Tónmenntakennari í Sunnulækjarskóla
Sunnulækjarskóli, Selfossi

Ert þú kennari? þá er þetta starfið fyrir þig
Leikskólinn Sjáland

Hofsstaðaskóli - umsjónarkennari á yngra stigi
Garðabær

Álftanesskóli - grunnskólakennari í sérkennslu
Garðabær