

Leikskólinn Naustatjörn: Kennari
Leikskólinn Naustatjörn óskar eftir að ráða leikskólakennara eða starfsmann með háskólamenntun sem nýtist í starfi í 80-100% ótímabundna stöðu. Sé starfshlutfall minna en 100% felur starfið í sér að einhverja daga í viku verði viðvera til kl: 16, þó aðrir dagar verði styttri.
Æskileg starfsbyrjun er 1. ágúst 2025, en annars eftir samkomulagi.
Í Naustatjörn er lögð áhersla á að nemendur fái að kljást við margvísleg verkefni í gegnum sjálfssprottinn leik og að þeir læri af eigin reynslu, virkni og áhuga.
Áhersluþættir skólans eru leikurinn og Jákvæður agi. Aðrir áhersluþættir eru náttúra og umhverfi og er skólinn handhafi Grænfánans.
Einkunnarorð skólans eru Félagsfærni - Endurnýting - Sjálfstæði - Tillitssemi – Athvarf.
Viltu vita meira? Kíktu í rafræna heimsókn https://naustatjorn.karellen.is/
Áhugasama bjóðum við velkomna í heimsókn.
Kennarar starfa samkvæmt lögum og reglugerð um leikskóla, öðrum lögum er við eiga, Aðalnámskrá leikskóla, kjarasamningum, mannauðs- og skólastefnu Akureyrarbæjar
Næsti yfirmaður er deildarstjóri.
- Vinnur að uppeldi og menntun barnanna. Fylgist vel með velferð þeirra og hlúir að þeim andlega og líkamlega í samræmi við eðli og þarfir hvers og eins svo að þau fái notið sín sem einstaklingar.
- Tekur þátt í gerð skólanámskrár, mati á starfsemi skólans og þróunarverkefnum undir stjórn skólastjóra.
- Tekur þátt í skipulagningu faglegs starfs deildarinnar undir stjórn deildarstjóra.
- Vinnur í nánu samstarfi við foreldra/forráðamenn barnanna. Situr foreldrafundi, sem haldnir eru á vegum skólans.
- Tekur þátt í samstarfi við ýmsar stofnanir og sérfræðinga sem tengjast skólanum í samráði við deildarstjóra. Situr kennarafundi og aðra fundi er yfirmaður segir til um og varðar starfsemi skólans.
- Sinnir þeim verkefnum er varðar uppeldi og menntun barnanna sem yfirmaður felur honum.
- Umsækjendur þurfa að hafa lokið leikskólakennaranámi, öðru kennaranámi sem veitir leyfisbréf til kennslu eða annarri háskólamenntun (B.s., B.a., B.ed.) sem nýtist í starfi.
- Reynsla af starfi í leikskóla er æskileg.
- Mikilvægt er að viðkomandi sé tilbúinn að takast á við skemmtilegt starf með börnum og fullorðnum
- Mikilvægt er að viðkomandi eigi auðvelt með mannleg samskipti, geti lesið í umhverfi sitt, sýni frumkvæði, sjálfstæði, ábyrgð og sveigjanleika í starfi.
- Þekking á agastefnu skólans, Jákvæðum aga er æskileg en þó ekki skilyrði.
- Gott vald á íslensku, bæði í rituðu og töluðu máli auk almennrar tölvukunnátta er nauðsynleg.
- Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu.





















