Leikskólinn Vinaminni
Leikskólinn Vinaminni
Leikskólinn Vinaminni

Leikskólakennari /uppeldismenntun

Leikskólakennari !

Hvernig væri að skoða nýjan starfsvettvang og prófa að starfa á sjálfstæðum leikskóla sem leggur aðaláherslu á metnaðarfullt skólastarf með börnunum.

Laus er til umsóknar 100% staða leikskólakennara/deildarstjóra í leikskólanum Vinaminni Asparfelli 10 111 Reykjavík í ágúst 2022

Í Vinaminni er unnið með grunnþætti menntunar eins og segir í aðalnámskrá menntamálaráðuneytisins.

Einnig eru hugmyndir Beritar Bae lagðar til grundvallar þar sem einblínt er á samskipti barna og fullorðinna með þroskamöguleika þeirra beggja að leiðarljósi hvað varðar þróun sjálfsins.

Leikskólinn Vinaminni er að leggja af stað í þróunarverkefni um málþroska barna.

Komdu og kynntu þér betur metnaðarfullt, skemmtilegt og fræðandi starf Vinaminnis.

Það væri akkur fyrir börnin í Vinaminni að fá þig í lið með okkur og efla það góða starf sem unnið er í skólanum.

Umsóknir ásamt ferilskrá og mynd sendist á netfangið [email protected]
Frekari upplýsingar í síma 587-0977 eða í síma 8618055

Hlakka til að heyra frá þér.

Sólveig leikskólastjóri.

Auglýsing birt24. október 2021
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Asparfell 10, 111 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögð
Starfsgreinar
Starfsmerkingar