

Leikskólakennari/þroskaþjálfi/leikskólaliði
Ungbarnaleikskóli Seltjarnarness er sjálfstæð fag- og rekstrareining á vegum Seltjarnarnesbæjar og er staðsettur í Gamla Mýrarhúsaskóla við Nesveg. Hann var stofnaður í júlí 2021 og tók til starfa 1. október sama ár. Leikskólinn heyrir undir skólanefnd bæjarins og er sviðsstjóri fjölskyldusviðs yfirmaður leikskólamála. Í leikskólanum eru nemendur á öðru aldursári til tveggja ára.
Í ungbarnaleikskólanum er lögð áhersla á máltöku og málrækt ungbarna, hreyfingu og útivist. Leikskólinn á í samstarfi við Bókasafn Seltjarnarnes og íþróttafélagið Gróttu.
· Sinnir þeim verkefnum er varðar uppeldi og menntun barna sem yfirmaður felur honum
· Fylgist vel með velferð barna og hlúir að þeim andlega og líkamlega í samræmi við eðli og þarfir hver og eins svo þau fái notið sín sem einstaklingar
· Tekur þátt í skipulagningu faglegs starfs deildarinnar
· Vinnur náið í samstarfi við foreldra / forráðamenn barnanna
· Starfa samkvæmt lögum og reglugerð um leikskóla, öðrum lögum er eiga við og aðalnámskrá leikskóla
· Leikskólakennara- eða þroskaþjálfamenntun eða sambærileg menntun
· Starfsleyfi sem leikskólakennari, þroskaþjálfi eða önnur sambærileg menntun sem nýtist í starfi
· Reynsla af starfi í leikskóla er æskileg
· Sundkort
· Bókasafnskort
· Heilsuræktarstyrkur
· Samgöngustyrkur
· 36 stunda vinnuvika
· Afsláttur af leikskólagjöldum á Seltjarnarnesi











