Leikskólinn  Gullborg
Leikskólinn Gullborg

Leikskólakennari /leiðbeinandi

Leikskólinn Gullborg auglýsir eftir leikskólakennara eða leiðbeinenda. Skólinn er fimm deilda og er í góðu samstarfi við tvo aðra leikskóla í Vesturbænum. Við leggjum sérstaka áherslu á félagsfærni og sjálfseflingu sem eru tveir af lykilþáttum menntastefnu Reykjavíkurborgar.

Framundan er spennandi tími uppfullur af ævintýrum og það væri frábært að fá þig í hópinn!

Um er að ræða 100% sem laust er nú þegar eða eftir samkomulagi.

Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er. Leikskólinn vinnur samkvæmt Regnbogavottun Reykjavíkur

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Að vinna að uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt áherslum leikskólans undir stjórn deildarstjóra.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Leikskólakennaramenntun og/eða önnur uppeldismenntun.
  • Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum með ungum börnum æskileg.
  • Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum.
  • Frumkvæði, áhugi og metnaður í starfi
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð.
  • Almenn tölvukunnátta.
  • Góð íslenskukunnátta
Fríðindi í starfi
  • Frír hádegismatur; hægt að fá vegan og grænmetismat.
  • Forgangur barna í leikskóla og afsláttur af dvalargjaldi.
  • Líkamsræktarstyrkur.
  • Menningarkort; frítt í öll söfn borgarinnar og bókasafnskort.
  • 36 stunda vinnuvika fyrir fullt starf.
  • Samgöngustyrkur.
  • Sundkort; frítt í sundlaugar Reykjavíkurborgar allt árið.
Auglýsing birt25. september 2026
Umsóknarfrestur4. október 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Rekagrandi 14, 107 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar