Leikskólinn Seljakot
Leikskólinn Seljakot

Leikskólakennari Seljakot

Leikskólakennari óskast við leikskólann Seljakot. Í Seljakoti dvelja 84 börn á fimm deildum. Nýlega var tekin í notkun ný starfsmannaálma og hreyfisalur, á næstu dögum verður opnuð ný deild. Starfsaðstæður bæði kennara og barna í Seljakoti eru fyrirmyndar.

Í starfi okkar með börnunum er meðal annars horft til hugmyndafræði Reggio Emilia á Ítalíu sem er þekkt fyrir skapandi starf og gagnrýna hugsun. Leiðarljós leikskólans er frumkvæði - sköpun - tjáning.

Leikskólinn er staðsettur við Rangársel í Seljahverfi. Í bakgarðinum er Seljadalur þar sem umhverfið er afar fallegt og fjölbreytt í óspilltri náttúrunni. Dalurinn býður upp á ótal kennslumöguleika með börnum þar sem m.a. má finna læki, tré, gróður og dýralíf.

Það eru fjölbreytt og skemmtileg verkefni framundan í Seljakoti. Starfsmannahópurinn er samheldinn og innan hans ríkir sérstaklega góður starfsandi. Óskað er eftir leikskólakennurum sem eru tilbúnir til að taka þátt og þróa starfið en frekar og vera um leið hluti af heildarsýn skólans og því faglega starfi sem þar fer fram.

Menntunar- og hæfniskröfur
Leikskólakennaramenntun og leyfisbréf kennara.
Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum æskileg
Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum
Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður
Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
Góð íslenskukunnátta
Helstu verkefni og ábyrgð
Að vinna að uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt starfslýsingu leikskólakennara, þ.m.t. að taka þátt í skipulagningu faglegs starfs og foreldrasamstarfi undir stjórn deildarstjóra.
Fríðindi í starfi
36 stunda vinnuvika
Afsláttur af leikskólagjöldum í Reykjavík
Ókeypis í sundlaugar Reykjavíkurborgar með S-kortinu
Ókeypis bókasafnskort og frítt á söfn með Menningarkortinu
Árlegur heilsuræktarstyrkur þegar þú hefur starfað í 6 mánuði
Samgöngusamningur
Auglýsing birt17. nóvember 2021
Umsóknarfrestur1. desember 2021
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Rangársel 15, 109 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar