Heilsuleikskólinn Holtakot
Leikskólinn er fjögurra deilda leikskóli þar sem lögð er áhersla á hreyfingu, listsköpun og hollt matarræði. Skólinn er Grænfánaskóli og starfar eftir Uppeldi til ábyrgðar auk LAL (leikur að læra skóli ). Einkunnarorð skólans eru: Jákvæðni, virðing og öryggi. Áhersla er lögð á metnaðarfullt starf.
Lógó
Leikskólakennari óskast á Heilsuleikskólann Holtakot
Leikskólinn er fjögurra deilda leikskóli þar sem lögð er áhersla á hreyfingu, listsköpun og hollt matarræði. Skólinn er Grænfánaskóli og starfar eftir "Uppeldi til ábyrgðar".
Einkunnarorð skólans eru: Jákvæðni, virðing og öryggi. Áhersla er lögð á metnaðarfullt starf.
Stefna leikskólans í starfsmannahaldi er að í skólanum starfi uppeldismenntaðir starfsmenn af báðum kynjum. Heimasíða leikskólans http://www.holtakot.is/
Helstu verkefni og ábyrgð
- Vinnur með og undir stjórn deildarstjóra
- Vinnur að uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt starfslýsingu leikskólakennara
- Tekur þátt í foreldrasamvinnu
Menntunar- og hæfniskröfur
- Leyfisbréf til kennslu*
- Að lágmarki 90 námseiningar á einu námssviði aðalnámskrár og menntunarfræði leikskóla
- Reynsla af starfi í leikskóla eða starfi með börnum er æskileg
- Ánægja af því að starfa með börnum
- Áhugi á heilsueflandi leikskólastarfi og hreyfingu
- Frumkvæði, samskiptahæfni og sjálfstæði í vinnu
- Sjálfstæði og skipulögð vinnubrögð
- Íslenskukunnátta á stigi B2 samkvæmt evrópska tungumálarammanum
*Fáist ekki starfsfólk með leyfisbréf til kennslu kemur til greina að ráða háskólamenntaðan einstakling tímabundið til starfa sbr. lög nr. 95/2019.
Hlunnindi í starfi
- Á Holtakoti er vinnuskyldan í fullu starfi 36 stundir. Vikulegur vinnutími er 38 stundir og er tveimur klukkustundum safnað upp í frítöku vegna vetrarfría, páska- og jólafría. Sérstök skráning barna er í vetrar- og jólafríi en lokað er í dymbilviku, sem og 2. janúar. Full stytting eða einn frídagur í mánuði og hluti af styttingu safnað í frídaga (sem teknir eru utan sumarorlofstímabils)
- Opnunartími leikskólans er 7:30-16:30 mánud.- fimmtud. og 7:30-16:00 á föstudögum
- Fimm skipulagsdagar á ári
- 25% stöðugildi á hverri deild vegna snemmtækrar íhlutunar
- Afsláttur er af leikskólagjöldum og forgangur inn í leikskóla fyrir börn starfsfólks
- Eftir þrjá mánuði í starfi getur starfsfólk fengið árskort í sundlaugar bæjarins, menningarkort í Hönnunarsafnið og bókasafnskort og eftir sex mánuði í starfi getur starfsfólk fengið heilsuræktarstyrk.
- Leikskólar reknir af Garðabæ hafa til úthlutunar sérverkefnasjóð þar sem metnaðarfullt starfsfólk hafa tækifæri til að auka við laun sín.
Auglýsing birt6. janúar 2025
Umsóknarfrestur20. janúar 2025
Tungumálahæfni
Íslenska
Mjög góðNauðsyn
Staðsetning
Breiðamýri, 225 Álftanes
Starfstegund
Hæfni
FrumkvæðiSjálfstæð vinnubrögð
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)
Laus staða í Marbakka
Leikskólinn Marbakki
Umsjónarkennari á yngsta stig, 100% starf.
Seltjarnarnesbær
Skemmtileg hlutastörf í boði í Breiðholti
Frístundamiðstöðin Miðberg
Deildarstjóri hjá Vinakoti
Vinakot
Leikskólakennari - leikskólaliði í Ösp
Leikskólinn Ösp
Leikskólakennari/leiðbeinandi í Nóaborg, 36 stunda vinnuvika
Leikskólinn Nóaborg
Leikskólakennari - Heilsuleikskólinn Suðurvellir
Sveitarfélagið Vogar
Við látum drauma barna rætast
Leikskólinn Hof
Viltu vinna í 7 tíma, en fá greidda 8!
Leikskólar stúdenta
Leikskólakennari / leiðbeinandi Seljaborg
Leikskólinn Seljaborg
Leikskólakennarar óskast
Kópasteinn
Viltu vinna í 7 tíma, en fá greidda 8!
Leikskólar stúdenta