
Leikskólakennari - leikskólaliði í Ösp
Viltu bætast í frábæran hóp okkar í leikskólanum Ösp? Leikskólinn er lítill og heimilislegur og starfsemi skólans leggur mikla áherslu á auðugt málumhverfi, vellíðan og starfsaðferðir sem mæta þörfum fjölbreytileika barnahópsins, sem er með ríkan tungumála- og menningarbakgrunn. Við leitum að starfsmanni í leikskólann Ösp, sem er staðsettur í hjarta Fellahverfisins og stutt í útivistarparadís Elliðaárdalsins. Mikil áhersla er á málþroska og læsi og er öflugt samstarf milli skólanna í hverfinu með það að markmiði að stuðla að jöfnum tækifærum barnanna til að láta drauma sína rætast. Starfið er fjölbreytt, skemmtilegt, gefandi og getur þú haft áhrif á þau ævintýri sem skapast þar á hverjum degi! Bæði fullt starf og hlutastarf í boði.
Vinnur með og tekur virkan þátt í leik og starfi með börnunum á deildinni bæði inni og úti.
Sinnir þeim störfum innan leikskólans, sem yfirmaður felur honum.
Vinnur að uppeldi og menntun leikskólabarna.
- Leikskólakennaramenntun og leyfisbréf kennara.
- Góð íslenskukunnátta skilyrði, lágmark á stigi C1 skv. evr. tungumálarammanum
- Reynsla af starfi í leikskóla.
- Stundvísi og faglegur metnaður.
- Frumkvæði, áhugi og vilji til að leita nýrra leiða.
- Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum.
- Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð.
- Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.
- Menningarkort – bókasafnskort
- Samgöngustyrkur
- Sundkort
- Heilsuræktarstyrkur
- 36 stunda vinnuvika fyrir fullt starf.












